Grófin fékk milljón fyrir Skógarbaðagolfið
Snilldarhugmyndin um góðgerðargolfhögg frá Skógarböðunum út á eyju sem búin var til sérstaklega fyrir þetta verkefni skammt frá landi gekk fullkomlega upp og fjöldi fólks sem lét vaða, sló eina kúlu eða fleiri, í þágu góðs málstaðar. Golfklúbbur Akureyrar og Skógarböðin afhentu í dag styrk að upphæð ein milljón króna til Grófarinnar - geðræktar.
- Góðgerðargolf í Skógarböðunum! | akureyri.net
- Vinsælt hjá kylfingum að geta slegið til góðs | akureyri.net
Góðgerðargolfhöggið var í boði yfir mótsdaga Arctic Open, hins árlega miðnæturgolfmóts GA. Stillt var upp á teig við Skógarböðin og fólki gafst kostur á freista gæfunnar gefn vægu gjaldi, auk þess að eiga sjálft möguleika á verðlaunum.
Eyjan góða séð frá Skógarböðunum.
„Þetta tókst með eindæmum vel og skapaði skemmtilega upplifun og viðbót við golfmótið og heimsóknina í Skógarböðin. Okkur er sönn ánægja að afhenda Grófinni þennan styrk ásamt Skógarböðunum og vonum að hann komi sér vel við þeirra frábæra starf,“ segir Steindór Kr. Ragnarsson, framkvæmdastjóri GA, í frétt á vef klúbbsins.
Sonja Rún Sigríðardóttir frá Grófinni tók á móti styrknum í dag í Skógarböðunum frá þeim Kjartani Sigurðssyni, framkvæmdastjóra Skógarbaðanna, og Steindóri Ragnarssyni, framkvæmdastjóra GA.