Fara í efni
Knattspyrna

Þorvaldur Örlygsson kjörinn formaður KSÍ

Þorvaldur Örlygsson var kjörinn formaður Knattspyrnusambands Íslands á ársþingi sambandsins í dag, laugardag. Hann er 11. formaður KSÍ og fyrsti Akureyringurinn sem gegnir embættinu.

Þorvaldur er fyrrverandi leikmaður KA, atvinnu- og landsliðsmaður og þjálfari en starfar nú sem rekstrarstjóri knattspyrnudeildar Stjörnunnar í Garðabæ.

Þrír voru í kjöri, Guðni Bergsson fyrrverandi formaður KSÍ og Akureyringurinn, Vignir Már Þormóðsson. Niðurstaða kosningar var sem hér segir:

  • Guðni Bergs­son - 30 at­kvæði - 20,83%
  • Vign­ir Már Þormóðsson - 59 at­kvæði - 40,97%
  • Þor­vald­ur Örlygs­son - 55 at­kvæði - 38,19%

Til að hljóta kosningu þurfti 50% atkvæða. Því var kosið öðru sinni á milli þeirra Vign­is og Þor­valdar.

  • Þor­vald­ur Örlygs­son - 75 at­kvæði - 51,72%
  • Vign­ir Már Þormóðsson - 70 at­kvæði - 48,28%