Fara í efni
Kælismiðjan Frost

Smíðaði hundrað myntmottur fyrir Frost

Guðmundur H. Hannesson, framkvæmdastjóri Frost, til vinstri, og Hörður Óskarsson. Mynd af vef Frost.

Kælismiðjan Frost gefur öllum starfsmönnum sínum mottu-barmnælur í tilefni Mottumars, sem er handan við hornið. Það er þúsundþjalasmiðurinn og vélsmiðurinn Hörður Óskarsson sem smíðar nælurnar úr mynt – gömlum einnar krónu og fimm krónu peningum og kallar Myntmottur. 

Sagt er frá þessu í skemmtilegri grein á heimasíðu Frost.

„Næstkomandi föstudag, 1. mars, hefst Mottumars - hið árlega átak Krabbameinsfélags Íslands og aðildarfélaga þess um allt land,“  segir þar. „Mottumars er hvatningarátak til karla um að halda vöku sinni gagnvart þeim vágesti sem krabbamein er og í ár er lögð áhersla á gildi hreyfingar sem forvarnar gegn krabbameinum. Jafnframt hefur Mottumars það að markmiði að safna fjármunum til þess að styrkja krabbameinsfélögin í landinu í sínu þarfa og mikilvæga starfi.“

Mottumars vísar vitaskuld til mottunnar, yfirvaraskeggsins sem karlmenn safna og skarta sérstaklega í mars til þess að vekja athygli á þessu forvarnaátaki og sýna stuðning sinn í verki.

Fjölbreytt skart úr gamalli mynt

Hörður Óskarsson hefur haft það áhugamál frá 2017 að smíða skartgripi af ýmsum toga úr gamalli mynt. Í byrjun smíðaði hann hringi úr myntinni en síðan hefur smíðin þróast og til hefur orðið fjölbreytt skart, m.a. Myntmotturnar. Smíðagripi sína kynnir Hörður á Facebooksíðunni Mynthringar og allskonar

Guðmundur H. Hannesson, framkvæmdastjóri Frost, segir það hafa verið sjálfgefið að leita til Harðar vegna þessa smíðaverkefnis „enda sé hann fyrrum starfsmaður fyrirtækisins. Hjá Frost starfaði Hörður frá 1995 til 2006 þegar hann færði sig um set og hefur síðan verið við kennslu og brautarstjórn á málmiðnbraut Verkmenntaskólans á Akureyri,“ segir í greininni.
 
 
Styrkir Krabbameinsfélagið 
 
Frá því Hörður hóf smíði á skartgripum úr mynt hefur hann styrkt Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis veglega með því að láta hluta söluandvirðis smíðagripa sinna renna til félagsins. Á þennan hátt vill Hörður styðja við mikilvægt starf Krabbameinsfélagsins og jafnframt minnast bróður síns heitins, Sigurðar Viðars Óskarssonar, sem lést úr krabbameini árið 2010. Hann var borinn til grafar á fimmtugs afmælisdegi sínum, 25. nóvember 2010.
 

Vert er að geta þess að myntmottur Harðar eru til sölu hjá Krabbameinsfélagi Íslands og Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis. Einnig er hægt að panta þær í gegnum Facebook síðu hans sem áður var nefnd.

Guðmundur framkvæmdastjóri Frosts hvetur alla til þess að leggja þessu góða málefni lið. Stuðningur almennings og fyrirtækja við forvarnir krabbameinsfélaganna og að styðja fólk sem greinist með krabbamein og aðstandendur þeirra skipti gríðarlega miklu máli.
 

Á meðfylgjandi myndum eru starfsmenn Frost á Akureyri og í Garðabæ með Akureyri með myntmotturnar í barmi sér. Einnig eru myndir af myntmottunum, myntpeningum eins og Hörður hefur smíðað motturnar úr og ýmsum öðrum smíðagripum sem hafa orðið til í höndum Harðar.