Fara í efni
KA

Sjötta tapið í röð og KA enn stigi ofan við fallsæti

Einar Rafn Eiðsson gerði níu mörk í kvöld og var markahæstur hjá KA eins og svo oft áður. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

KA tapaði sjötta leiknum í röð í Olísdeildinni í handbolta þegar liðið mætti FH í Hafnarfirði í kvöld. Leikurinn var jafn nær allan tímann, staðan 14:14 í hálfleik og Hafnfirðingarnir unnu með aðeins eins marks mun, 28:27.

ÍR tapaði í kvöld fyrir Aftureldingu og staðan í botnbaráttunni er því óbreytt; KA er með 11 stig en ÍR 10, bæði eftir 20 leiki. Hörður er lang neðstur og fallinn úr efstu deild en ÍR er í efra fallsætinu.

Mörk KA: Ein­ar Rafn Eiðsson 9 (4 víti), Ólaf­ur Gúst­afs­son 4, Skarp­héðinn Ívar Ein­ars­son 4, Dag­ur Gauta­son 3, Gauti Gunn­ars­son 2, Ein­ar Birg­ir Stef­áns­son 2, Arn­ór Ísak Hadds­son 1, Hilm­ar Bjarki Gísla­son 1, All­an Norðberg 1.

Var­in skot: Nicholas Satchwell 7 (35%), Bruno Bernat 7 (31,8%).

Tvær umferðir eru eftir af deildarkeppninni, KA og ÍR eiga þessa leiki eftir:

Miðvikudag 5. apríl:
KA – Fram
ÍR – FH

Mánudag 10. apríl:
Grótta – KA
Fram – ÍR

  • Verði KA og ÍR jöfn að stigum standa KA-menn betur að vígi og ÍR fellur. Liðin mættust tvisvar í deildinni í vetur og unnu hvort sinn leik en KA er með mun betri markatölu úr innbyrðis leikjunum.

Smellið hér til að sjá alla tölfræði úr leiknum í kvöld.

Smellið hér til að sjá stöðuna í deildinni