Fara í efni
KA

„Lang­ar að halda áfram að skrifa sög­una“

Hallgrímur Jónasson þjálfari og Hrannar Björn Steingrímsson einn reyndasti leikmaður KA. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

KA leikur til úrslita í bikarkeppni Knattspyrnusambandsins, Mjólkurbikarkeppninni, gegn Víkingi á laugardaginn. Flautað verður til leiks á Laugardalsvelli klukkan 16.00.

„Þetta leggst rosa­lega vel í okk­ur. Við erum ótrú­lega spennt­ir og okk­ur lang­ar að halda áfram að skrifa sög­una,“ sagði Hall­grím­ur Jónas­son, þjálf­ari KA, í sam­tali við mbl.is á blaðamanna­fundi sem KSÍ hélt í Laugardalnum í dag vegna leiksins.

„Við höf­um aldrei unnið bik­ar­inn og vilj­um koma hérna og taka hann eft­ir að hafa upp­lifað ým­is­legt í sum­ar. Evr­ópu­keppn­in var nátt­úr­lega ótrú­lega skemmti­legt æv­in­týri þar sem við gát­um glatt mörg KA-hjörtu og við ætl­um að reyna að gera það aft­ur á laug­ar­dag­inn,“ sagði Hallgrímur ennfremur.

Þetta er fjórða tilraun KA-manna til að hreppa bikarinn en hingað til hafa þeir orðið að gera sér silfurverðlaun að góðu. 

KA-maðurinn Sveinn Margeir Hauksson og Pablo Punyed, einn besti leikmaður Víkings í leik á Greifavelli KA. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Ef spár ganga eftir mun veðrið sannarlega ekki leika við KA-menn og Víkinga á Laugardalsvellinum því gert er ráð fyrir roki og úrhellisrigningu, en engan bilbug er að finna á þjálfaranum þrátt fyrir það. „Þetta verður gríðarlega skemmtilegur leikur í, að mér heyrðist, smá vind og rigningu en við erum bara klárir,“ sagði Hallgrímur í dag.

„Vík­ing­ar eru mjög sterk­ir. Við verðum að eiga góðan leik, það er al­veg klárt. Ég tel að það hafi hjálpað okk­ur rosa­lega mikið að hafa spilað marga stóra leiki í sum­ar, þar sem er mikið und­ir, og til dæm­is spilað á Laug­ar­dals­velli. Að við séum ekki að koma í fyrsta skiptið hérna,“ sagði þjálfarinn.

Viðtal fótbolta.net við Hallgrím Jónasson þjálfara KA

Viðtal RÚV við Hallgrím Jónasson

Viðtal mbl.is við Hallgrím Jónasson

Viðtal fótbolta.net við Ásgeir Sigurgeirsson fyrirliða KA