Fara í efni
KA

KA/Þór vann nauman sigur á Stjörnunni

Rut Arnfjörð Jónsdóttir lék gríðarlega vel í dag, bæði í sókn og vörn. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Íslandsmeistarar KA/Þórs sigruðu Stjörnuna í dag, 27:25, í Olís deild Íslandsmótsins í handbolta í Garðabæ.

Jafnt var nánast á öllum tölum í fyrri hálfleik, heimaliðið komst þó tveimur mörkum yfir, 14:12, en Stelpurnar okkar jöfnuðu áður en hálfleiknum lauk. Staðan 14:14 í hálfleik. Þær tóku svo forystu strax í upphafi seinni hálfleiks og voru einu til tveimur mörkum yfir þar til Stjarnan jafnaði metin um miðjan hálfleikinn, 19:19, en KA/Þór náði yfirhöndinni fljótlega aftur og hélt sínu striki.

Stjarnan minnnkaði muninn niður í eitt mark á síðustu mínútunni, en Rut Jónsdóttir kórónaði frábæra frammistöðu þegar hún gerði síðasta mark leiksins eftir að hafa brotist í gegnum vörn heimaliðsins, í síðustu sókn KA/Þórs.

KA/Þór er nú í þriðja sæti með 17 stig að 13 leikjum loknum. Valur er með 20 stig en hefur lokið 15 leikjum og Fram er á toppnum sem fyrr, með 23 stig eftir 14 leiki. Með sigri í leikjunum tveimur sem KA/Þór á til góða – gegn HK og ÍBV á útivelli – fer liðið upp í annað sæti.

Mörk KA/Þ​órs: Rut Arn­fjörð Jóns­dótt­ir 9 (3 víti), Martha Her­manns­dótt­ir 6 (5 víti), Rakel Sara Elvars­dótt­ir 4, Al­dís Ásta Heim­is­dótt­ir 3, Unn­ur Ómars­dótt­ir 2, Hulda Bryn­dís Tryggva­dótt­ir 2, Ásdís Guðmunds­dótt­ir 1.

Sunna Guðrún Pétursdóttir varði 5 skot (26%) og Matea Lonac 2 (15%).