Fara í efni
KA

KA-strákarnir komnir í kjörstöðu í blakinu

KA-menn gerðu sér lítið fyrir og unnu Hamar í Hveragerði í dag í þriðja úrslitaleik liðanna um Íslands­meistaratitil karla í blaki. Hvort lið hafði áður unnið einn heimaleik en KA er nú komið með 2:1 í rimmunni og getur tryggt sér titilinn með sigri í næsta leik á heimavelli á þriðjudaginn.

  • Úrslit í hrinunum í dag: 18:25 – 25:23 – 22:25 – 22:25

Lið Ham­ars, Íslandsmeistari síðasta árs, varð deildarmeistari í vor og átti því heimaleikjaréttinn. Hamar vann fyrsta leik­inn 3:1 í Hver­agerði en KA jafnaði met­in með 3:2-sigri á KA-heimilinu og náði svo frumkvæðinu með góðum sigri í dag.