Fara í efni
KA

KA nældi í þrjú stig með sigri á Fylki

Sveinn Margeir Hauksson gerði fyrra mark KA með bylmingsskoti yst úr vítateignum. Hér þrumar hann boltanum sem small í netamösvkunum augabragði síðar. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

KA-menn bættu þremur stigum í sarpinn í dag þegar þeir sigruðu gesti sína úr Árbænum í Reykjavík, Fylkismenn, 2:1 í Bestu deildinni, efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu.

Sveinn Margeir Hauksson gerði fyrsta mark leiksins eftir hálftíma, kom KA í 1:0 með þrumuskoti yst úr víteignum og Harley Willard breytti stöðunni í 2:0 þegar klukkutími var liðinn.

Þegar fimm mínútur voru eftir skv. vallarklukkunni, en níu mínútur í raun, minnkuðu gestirnir muninn. Það var Bene­dikt Daríus Garðars­son sem skoraði af stuttu færi eftir hornspyrnu. Bæði lið fengu ákjósanleg færi til að skora meira en náðu því ekki – sem var í raun ótrúlegt.

KA er komið með 17 stig og fer með sigrinum upp að hlið FH í fjórða sæti, en leikur FH og Breiðabliks stendur nú yfir.

Nánar á eftir