KA-menn töpuðu illa fyrir öflugum Haukum
KA-menn áttu aldrei möguleika þegar Haukar komu í heimsókn í gærkvöldi í 2. umferð Olísdeildarinnar, efstu deildar Íslandsmótsins í handbolta. Gestirnir flugu suður með tvö stig í pokahorninu eftir átta marka sigur, 34:26. Haukar eru efstir í deildinni, hafa unnið báða leikina, en KA-menn hafa tapað báðum leikjum.
Akureyri.net hafði ekki tök á að fylgjast með leiknum en skv. mbl.is voru Haukar miklu betri nánast allan fyrr hálfleikinn og þurftu ekki langan tíma í sóknum sínum til að opna KA-vörnina. „Þeir leiddu 7:4, 10:5 og 13:7 og markverðir KA vörðu ekki skot fyrr en eftir átján mínútur. Mestur varð munurinn sjö mörk í stöðunni 18:11. Þá breyttist takturinn í leiknum og KA nýtti fimm síðustu mínútur fyrri hálfleiks til að minnka muninn í tvö mörk. Hálfleiksstaðan var 18:16 og markverðir KA búnir að verja eitt skot hvor,“ segir Einar Sigtryggsson á mbl.is.
Einar segir einnig: KA „var í eltingaleik allan seinni hálfleikinn en snemma í honum komust Haukarnir fimm mörkum yfir. Þeir gerðu svo ekki sömu mistökin og undir lok fyrri hálfleiks og hleyptu KA-mönnum aldrei nálægt sér. Heimamenn fengu stöður í leiknum til að höggva nærri Haukunum en nýttu þær illa og því fór sem fór.
Skarphéðinn Ívar Einarsson fór á kostum í Haukaliðinu á sínum uppeldisslóðum. Hann raðaði inn mörkum í fyrri hálfleiknum ásamt Össuri Haraldssyni. Hann hélt svo bara uppteknum hætti í seinni hálfleiknum.
Einar Birgir Stefánsson var langdrýgstur hjá KA, jafnt í sókninni sem vörninni. Dagur Árni Heimisson studdi vel við Einar Birgi og skoraði mikið.“
Nánar hér á mbl.is og hér og hér
Smellið hér til að sjá viðtal við Halldór Stefán þjálfara KA
Smellið hér til að sjá alla tölfræði leiksins