Fara í efni
KA

Jonathan Hendrickx til liðs við KA!

Knattspyrnudeild KA samdi í dag við Belgann Jonathan Hendrickx. Jonathan er 27 ára varnarmaður sem kemur til liðs KA frá Lommel í Belgíu. Þetta kom fram á heimasíðu KA rétt í þessu.

Á heimasíðu KA segir: „Jonathan þekkir vel til á Íslandi eftir að hafa spilað 98 leiki á Íslandi með FH og Breiðablik og skorað í þeim leikjum 3 mörk. Jonathan mun verða mikill styrkur fyrir KA liðið sem ætlar sér stóra hluti í sumar undir stjórn Arnars Grétarssonar.

Jonathan er væntanlegur til landsins í vikunni ásamt félaga sínum Sebastiaan Brebels sem samdi við KA á dögunum.“