Þór/KA steinlá fyrir Breiðabliki í Kópavogi
Þór/KA steinlá fyrir Breiðabliki í Kópavogi í dag í þriðju umferð efri hluta Bestu deildar kvenna í knattspyrnu. Blikar byrjuðu með látum, Samantha Smith gerði þrjú mörk á fyrstu 15 mínútunum og þegar fyrri hálfleik lauk var staðan 6:0. Sandra María Jessen minnkaði muninn snemma í seinni hálfleik og þar við sat. Þetta var 22. mark Söndru Maríu í deildinni í sumar og er hún langmarkahæst sem fyrr.
Óþarft er að hafa mörg orð um leikinn. Tölurnar tala sínu málinu, yfirburðir toppliðs Blika voru gríðarlegir.
Breiðablik er efst í deildinni með 57 stig og Valur, sem vann FH 2:0 í dag, hefur 56 stig.
Þór/KA er í þriðja sæti með 33 stig eins og Víkingur, sem gerði jafntefli við Þrótt á föstudaginn, en Stelpurnar okkar eru með betri markahlutfall. Þróttur og FH með 25 stig í fimmta og sjötta sæti.
Tvær umferðir eru eftir. Þór/KA mætir Þrótti næst á útivelli og fær síðan Víking í heimsókn í síðustu umferð, laugardaginn 5. október.
Í næstu umferð leikur Breiðablik við FH og Valur mætir Víkingi og toppliðin mætast svo í síðustu umferðinni; Valur tekur á móti Breiðabliki að Hlíðarenda 5. október.
Umfjöllun mbl.is um leik Breiðabliks og Þórs/KA