Fara í efni
Íshokkí

SA tekur á móti Fjölni í fyrsta úrslitaleiknum

Deildarmeistarar! Kvennalið SA fagnar innilega þegar deildarmeistarabikarinn fór á loft á dögunum. Ljósmynd: Þórir Tryggvason.

Lokabaráttan um Íslandsmeistaratitil kvenna í íshokkí hefst í kvöld þegar lið Skautafélags Akureyrar tekur á móti Fjölni. Leikurinn fer fram í Skautahöllinni á Akureyri og hefst kl. 19:30.

Lið SA fékk flest stig allra í Hertz deildinni, er því deildarmeistari og byrjar þar af leiðandi á heimavelli. 

Skautafélagsmenn hvetja áhorfendur til þess að mæta í rauðu svo litur félagsins verði áberandi í stúkunni. Á vef SA kemur fram að miðaverð  sé 1.500 kr. en frítt inn fyrir 16 ára og yngri. Rétt er að benda á að appið Stubbur er handhægt til að tryggja sér miða í forsölu.

Leikirnir í úrslitakeppninni:

  • Leikur 1 : Fimmtudag 2. mars í Skautahöllinni Akureyri kl. 19:30
  • Leikur 2: Laugardag 4. mars í Egilshöll kl. 16:45
  • Leikur 3: Þriðjudag 7. mars í Skautahöllinni Akureyri kl. 19:30

Vinna þarf þrjá leiki til að verða Íslandsmeistari.

4. leikur – ef með þarf – 9. mars í Egilshöll kl. 19:30
5. leikur – ef með þarf – 11. mars í Skautahöllinni Akureyri kl. 16:45