Fara í efni
Íshokkí

Íþróttir helgarinnar – mörg lið á faraldsfæti

Eins og endranær verður nóg um að vera hjá akureyrskum íþróttaliðum um helgina. Á dagskrá eru blak, körfubolti, handbolti, íshokkí og fótbolti, en reyndar aðeins tveir heimaleikir af tíu leikjum sem fram undan eru í þessum greinum. Það eru því mörg akureyrsk íþróttalið á faraldsfæti í dag og næstu daga.

FÖSTUDAGUR - handbolti, körfubolti

Karlalið KA í handknattleik sækir lið HK heim í 18. umferð efstu deildar karla, Olísdeildarinnar, í dag. 

  • Olísdeild karla í handknattleik
    Kórinn kl. 18
    HK - KA

KA vann fyrri leik liðanna á Akureyri í október með einu marki, 35-34.  Fyrir leikinn er HK með 14 stig í 8. sæti deildarinnar, KA með 12 stig í 9. sæti. Leikurinn er því mikilvægur báðum liðum í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni, en eins og staðan er núna er HK inni og KA úti.

- - -

Karlalið Þórs í körfuknattleik sækir KV heim í 18. umferð 1. deildarinnar í kvöld. KV vann fyrri leik liðanna þegar þau mættust á Akureyri í nóvember með sjö stiga mun, 76-69.

  • 1. deild karla í körfuknattleik
    Meistaravellir kl. 19:15
    KV - Þór

Fyrir leikinn eru Þórsarar í 5. sæti deildarinnar og eiga í harðri baráttu við Fjölni og Breiðablik um að halda því sæti. Þór og Fjölnir hafa unnið níu leiki, en Breiðablik átta. KV er í 9. sæti deildarinnar, hefur unnið sex leiki. 

- - -

LAUGARDAGUR - blak, fótbolti, handboilti, íshokkí

Það verður nóg um að vera hjá íþróttafólki Akureyrar í dag, heima og að heiman. Tvö Akureyrarlið sem eiga leiki í dag urðu deildarmeistarar um liðna helgi. Bikar fer á loft síðdegis eftir leik KA/Þórs, en væntanlega bíður það heimaleiks hjá karlaliði SA í íshokkí að fá afhentan bikar sem deildarmeistarar Toppdeildarinnar. Í dag er líka fótbolti og blak á dagskránni.

Blakboltinn flýgur fyrstur af stað í boltaleikjum dagsins þegar kvennalið KA sækir Álftnesinga heim. Liðin hafa mæst tvisvar í deildinni í vetur og KA haft betur í bæði skiptin, fyrst 3-0 á Álftanesi og svo 3-1 á Akureyri.

  • Unbroken-deild kvenna í blaki
    Álftanes kl. 12
    Álftanes - KA

Að öllu jöfnu má búast við öruggum sigri KA sem þar með myndi endurheimta toppsæti Unbroken-deildarinnar af Völsungi. Fyrir leikinn í dag er KA í 2. sæti með 38 stig og á leik til góða á Völsung sem er með 40 stig. Álftnesingar eru hins vegar á botni deildarinnar með þrjú stig úr 15 leikjum.

- - -

Karlalið KA í knattspyrnu leikur fjórða leik sinn í riðli 2 í A-deild Lengjubikars karla í dag þegar þeir sækja Fylki heim í Árbæinn. KA hefur unnið einn leik, gert eitt jafntefli og tapað einum, er með fjögur stig eins og Breiðablik og Fylkir, en Fylkismenn eiga leik til góða. Fram ef efst í riðlinum með sex stig.

  • A-deild Lengjubikars karla, riðill 2
    Würth-völlurinn í Árbæ kl. 15
    Fylkir - KA

- - -

Það verður væntanlega veisla í KA-heimilinu síðdegis á laugardag því stelpurnar í KA/Þór tryggðu sér sigur í Grill 66 deildinni með sigri um síðastliðna helgi og fá bikarinn afhentan að leik loknum í dag. 

  • Grill 66 deild kvenna í handknattleik
    KA-heimilið kl. 15
    KA/Þór - Víkingur

Leikur dagsins er gegn Víkingi sem er í 4. sæti deildarinnar með 19 stig. KA/Þór er í efsta sætinu með 18 stig, HK er með 22 og Afturelding 21 stig. KA/Þór vann fyrri viðureign þessara liða í nóvember með fjögurra marka mun, 19-15.

- - -

Baráttan á toppi Grill 66 deildar karla í handknattleik heldur áfram. Þórsarar eiga erfiðan útileik fyrir höndum á laugardag þegar þeir halda til Ísafjarðar og mæta liði Harðar. Helstu keppinautarnir, Selfoss og Víkingur, mætast í kvöld og munu úrslitin í þeim leik að líkindum skipta máli upp á framhaldið í toppbaráttunni. Ef Selfoss vinnur sína leiki verður Þór að gera það einnig til að ná efsta sætinu.

  • Grill 66 deild karla í handknattleik
    Ísafjörður kl. 16
    Hörður - Þór

Þórsarar unnu stórsigur, 33-19, í fyrri leiknum gegn Herði sem fram fór á Akureyri í október. Þór er sem stendur í 2. sæti deildarinnar með 20 stig, tveimur stigum á eftir Selfyssingum, en eiga leik inni. Hörður er í 4. sæti deildarinnar með 14 stig. Baráttan á toppnum á milli Þórs og Selfoss snýst um það hvort liðið fer beint upp í Olísdeildina í stað þess að fara í umspil um seinna lausa sætið.

- - -

Karlalið KA í blaki sækir Íslandsmeistara Hamars heim til Hveragerðis í 19. umferð Íslandsmótsins, Unbroken-deildarinnar. Hamar hefur unnið Íslandsmeistaratitilinn þrisvar á síðastliðnum fjórum árum. KA er hins vegar á toppi deildarinnar núna þegar liðin eiga þremur leikjum ólokið.

  • Unbroken-deild karla í blaki
    Íþróttahúsið í Hveragerði kl. 17
    Hamar - KA

KA er með 42 stig í efsta sæti deildarinnar, Þróttur R. í 2. sæti með 40 stig og Hamar með 39. Það er því hörð og spennandi barátta fram undan um deildarmeistaratitilinn og ekki síður röðina sem ræður heimaleikjaréttinum í úrslitakeppninni. Með góðum sigri í dag gæti KA reyndar farið langleiðina með að tryggja sér efsta sætið.

- - -

Íslandsmót karla og kvenna í íshokkí hafa í vetur verið skipulögð með það í huga að samnýta ferðir beggja liða frá hverju félagi og spila svokallaða tvíhöfða. Einn þannig er á dagskrá á laugardag þegar bæði SA-liðin fara suður og mæta liðum Skautafélags Reykjavíkur.

  • Toppdeild kvenna í íshokkí
    Skautahöllin í Laugardal kl. 16:30
    SR - SA

Liðin þrjú í Toppdeild kvenna spila áttfalda umferð og hafa SA og SR mæst sex sinnum það sem af er tímabili. SA hefur unnið fjóra leiki í venjulegum leiktíma, en liðin hafa unnið hvort sinn leikinn eftir framlengingu og vítakeppni.

Karlalið SA hefur þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn og oddaleiksréttinn í úrslitakeppni Íslandsmótsins. Það varð reyndar ljóst fyrir rúmri viku án þess að SA væri að spila þann daginn því Fjölnir vann SR og skaust upp í 2. sætið, en fyrir þann leik var SR eina liðið sem gat náð SA að stigum.

  • Toppdeild karla í íshokkí
    Skautahöllin í Laugardal kl. 19:30
    SR - SA

SA er á toppnum með 35 stig og á þrjá leiki eftir, Fjölnir er með 27 stig og á einn leik eftir og SR í 3. sæti með 26 stig og tvo leiki eftir. Liðin fjögur í Toppdeild karla spila sexfalda umferð. SA og SR hafa þegar mæst fjórum sinnum og SA haft betur í þremur leikjum. 

SUNNUDAGUR - fótbolti

Eina Akureyrarliðið sem verður í eldlínunni á sunnudag er knattspyrnulið kvenna, Þór/KA, sem tekur á móti liði Fram í Boganum.

  • A-deild Lengjubikars kvenna í knattspyrnu, riðill 1
    Boginn kl. 16:30
    Þór/KA - Fram

Bæði lið þurfa á sigri og stigunum að halda til að halda sig í baráttu um annað af tveimur efstu sætum riðilsins. Bæði lið hafa unnið einn leik og tapað einum, en Valur og Þróttur eru efst í riðlinum með sex stig úr tveimur leikjum. Þór/KA á síðan eftir að sækja Fylki heim og taka á móti Val.