Fara í efni
Íshokkí

Íshokkístrákarnir á mikilli siglingu

Uni Steinn Sigurðarson Blöndal brýtur ísinn! Pökkurinn í markinu í fyrsta sinn í leiknum, þegar átta mínútur og 35 sek. voru liðnar af fyrsta leikhluta. Arnar Helgi Kristjánsson, lengst til hægri, sendi pökkinn á Una. Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson

Akureyringar voru áberandi sem endranær og gerðu sjö af átta mörkum U18 landsliðsins í íshokkí þegar það vann Tyrki 8:4 í Skautahöllinni á Akureyri í kvöld.

Uni Steinn Sigurðarson Blöndal og Arnar Helgi Kristjánsson skoruðu báðir þrisvar og Ormur Jónsson einu sinni í hörkuskemmtilegum leik. Mikill hraði og barátta var strax frá byrjun en eftir því sem leið á náðu íslensku strákarnir betri tökum á leiknum og unnu mjög sanngjarnan sigur.

Ísland hefur þar með unnið þrjá fyrstu leikina í A-riðli 3. deildar heimsmeistaramótsins og er eina liðið með fullt hús stiga.

Mexíkó og Ísrael hafa unnið tvo leiki og allt stefnir í að viðureign Íslands og Ísraels á laugardaginn verði úrslitaleikur riðilsins. Ísland mætir Lúxemborg annað kvöld

Mörkin í kvöld:

  • 1:0 Uni Blöndal (8:35)
  • 1:1 Osman Meydanci (11:35)
  • 2:1 Uni Blöndal (16:06)
  • 3:1 Kristján Jóhannesson (19:18)
  • 3:2 Enes Demir (27:40)
  • 4:2 Ormur Jónsson (28:28)
  • 5:2 Uni Blöndal (28:50)
  • 5:3 Enes Demir (36:56)
  • 6:3 Arnar Helgi Kristjánsson (50.57)
  • 7:3 Arnar Helgi Kristjánsson (50.57)
  • 8:3 Arnar Helgi Kristjánsson (50.01)
  • 8:4 Enes Demir (51:30)

Smellið hér til að sjá leikskýrsluna.

Arnar Karvelsson í góðri gæslu tveggja Tyrkja í kvöld.

Handagangur í öskjunni við mark Tyrkjanna!

Arnar Helgi Kristjánsson, lengst til hægri, sendi pökkinn á Una Blöndal ...

... sem skorar fyrsta mark leiksins af öryggi.

Íslensku strákarnir fagna fyrsta marki leiksins.

Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson