Fallegur barnafrakki úr efni frá Gefjun
SÖFNIN OKKAR – IIIFrá Iðnaðarsafninu á Akureyri_ _ _
Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það verður gert vikulega, á fimmtudögum.
Þessi fallegi frakki er á Iðnaðarsafninu á Akureyri. Fulltrúar safnsins heimsóttu allar deildir öldrunarheimila Akureyrarbæjar árið 2018 og í eitt skiptið afhenti Elín Sigríður Axelsdóttir (1921-2021) þeim flíkina, sem hún saumaði úr Gefjunarefni árið 1952 á þriggja ára son sinn. Elíni Sigríði fannst við hæfi að frakkinn yrði varðveittur á Iðnaðarsafninu þar sem efnið var ofið á Gefjun, verksmiðju Sambands íslenskra samvinnufélaga á Gleráreyrum.
Frakkann saumaði Elín á soninn Þórð Ingimarsson og það er fallegt að hún skyldi varðveita flíkina allan þennan tíma og meira að segja fara með hann með sér á elliheimilið.
Frakkinn er sennilega sá safngripur á Iðnaðarsafninu sem flestir hafa snert því gestir vilja nánast undantekningarlaust fá að handfjatla hann og skoða saumaskapinn sem er mjög vandaður á allann hátt.
Elín Sigríður Axelsdóttir fæddist í Hvammi þann 28. september 1921. Hún lést á dvalarheimilinu Grund við Hringbraut í Reykjavík 4. júlí 2021. Foreldrar hennar voru Axel Björnsson og Margrét Guttormsdóttir.