Nýtt meistaranám í stjórnun við HA
Meistaranám í stjórnun verður í boði við Viðskiptadeild Háskólans á Akureyri frá og með næsta hausti. Annars vegar er um að ræða MS gráðu og hins vegar MM gráðu, skv. upplýsingum frá skólanum.
„Við höfum stefnt að því í nokkur ár að koma á laggirnar meistaranámi í stjórnun enda hafa þarfagreiningar Viðskiptadeildar bent eindregið í þá átt. Innan deildarinnar eigum við mikinn mannauð sem getur tekist á hendur að kenna í þessu nýja námi og við gerum ráð fyrir því að nýja nám hljóti góðar viðtökur,“ segir Grétar Þór Eyþórsson, prófessor og deildarformaður Viðskiptadeildar.
- MS gráða í stjórnun er 90 ECTS eininga nám á meistarastigi. Námið hefur það að markmiði að nemendur öðlist sérhæfða þekkingu á stjórnun sem nýtist í störfum þeirra úti í atvinnulífinu. „Það býður upp á breiðan grunn í stjórnun skipulagsheilda. Markmiðið er að nemendur öðlist þekkingu og hæfni til stjórnunar fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka,“ segir í tilkynningu frá skólanum.
- Nemendur geta tekið valnámskeið við aðra innlenda og erlenda háskóla sem HA hefur samstarfssamninga við.
- MM gráða í stjórnun er 90 ECTS eininga nám á meistarastigi án lokaritgerðar. „Í náminu öðlast nemendur sérhæfða þekkingu á stjórnun sem nýtist í þeirra störfum úti í atvinnulífinu. Það býður upp á breiðan grunn í stjórnun skipulagsheilda.“
- Markmiðið er að nemendur öðlist þekkingu og hæfni til stjórnunar fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka.
- Nemendur geta tekið valnámskeið við aðra innlenda og erlenda háskóla sem HA hefur samstarfssamninga við.
Sveigjanleiki í námi
Námið er skilgreint sem fullt nám í eitt og hálft ár. Boðið verður upp á sveigjanleika þannig að nemendur geti tekið námið á lengri tíma. Kennsla mun fara fram á netinu í rauntíma á Teams/Zoom og með upptökum. Í sumum námskeiðunum geta nemendur mætt í kennslustofu þegar kennari er með kennslu í gangi. Flest námskeiðin sem boðið verður uppá eru kennd á ensku en einstaka námskeið verða kennd á íslensku.
Námið er sett upp sem sveigjanlegt nám í samræmi við kennslustefnu Viðskiptadeildar. Fjölbreytt námsmat verður og miðar m.a. að hagnýtingu þekkingar á fræðasviðinu. Í því felast meðal annars hópverkefni, einstaklingsverkefni og próf.