Fara í efni
Handknattleikur

Jóan Símun á leið í raðir KA-manna á ný

Jóan Símun Edmundsson í Evrópuleik gegn írska liðinu Dundalk sumarið 2023. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Knattspyrnudeild KA hefur samið á ný við færeyska landsliðsmanninn Jóan Símun Edmundsson sem lék með félaginu síðari hluta sumars 2023. Þetta var tilkynnt á samfélagsmiðlum KA í dag.

Jóan Símun, sem er 33 ára, getur leikið bæði sem framherji eða miðjumaður. Hann gekk fyrst í raðir KA undir lok júlí mánaðar sumarið 2023 „þar sem hann sýndi gæði sín. Eftirminnileg er frammistaða hans í [E]vrópueinvígi KA gegn írska stórliðinu Dundalk FC sem KA vann samanlagt 5-3 en Jóan skoraði fyrra mark KA í 2-2 jafntefli liðanna á Írlandi,“ segir í tilkynningunni frá KA.

Þar segir ennfremur:„ [...] Jóan [er] einhver allra besti leikmaður í sögu Færeyja en hann hefur leikið 94 landsleiki fyrir þjóð sína og gert í þeim 8 mörk. Hallgrímur Jónasson þjálfari KA lék með Jóan með liði OB í Danmörku á sínum tíma en Jóan hóf feril sinn með B68 Toftir í Færeyjum og hefur átt gríðarlega flottan feril þar sem hann hefur leikið með stórum liðum eins og Newcastle, Viking, Fredericia, Vejle, OB, Arminia Bielefeld og Beveren áður en hann kom fyrst til KA.“

Í tilkynningunni segir að Jóan Símun hafi undanfarið leikið með liði KF Shkupi í Makedóníu „en kemur norður á frjálsri sölu og verður virkilega spennandi að sjá kappann aftur í gula og bláa búningnum. KA leikur á ný í [E]vrópukeppni í sumar og ljóst að reynsla Jóans mun hjálpa liðinu í þeirri baráttu auk leikjanna í Bestudeildinni og í titilvörn liðsins í Mjólkurbikarnum. “