Handknattleikur
Baldvin Þór bætti eigið Íslandsmet í 3000 m
19.01.2025 kl. 19:00
Baldvin Þór Magnússon þreyttur en alsæll eftir methlaupið í Sheffield í dag.
Baldvin Þór Magnússon úr Ungmennafélagi Akureyrar bætti eigið Íslandsmet í 3.000 metra hlaupi innanhúss um rúmlega tvær og hálfa sekúndu á móti í Sheffield á Englandi í dag.
Tími Baldvins, sem sigraði á mótinu, var 7 mínútur, 45 sekúndur og 13 sekúndubrot; 7:45,13 mín. Gamla metið setti Baldvin á móti í Bandaríkjunum í febrúar 2022 þegar hann hljóp á 7:47,51 mín.
Baldvin á níu Íslandsmet
Baldvin Þór á nú Íslandsmet í fimm greinum utanhúss:
- 1500 m – 3:39,90 mín – sett í júlí 2024
- 3000 m – 7:49,68 mín – sett í júlí 2023
- 5000 m – 13:20,34 mín – sett í apríl 2024
- 5 km götuhlaup – 13:42,00 mín – sett í mars 2024
- 10 km götuhlaup – 28:51,00 mín – sett í október 2023
Hann á fjögur Íslandsmet innanhúss:
- 1500 m – 3:41,05 - 4. febrúar 2024
- 1 míla – 3:59,60 - 14. janúar 2023
- 3000 m – 7:45,13 - 19. janúar 2025
- 5000 m – 13:58,24 - 24. febrúar 2023