Fara í efni
Fyrirtækið Heilsuvernd

Vilhjálmur og Gerður Kristný í Davíðshúsi

Litla ljóðahátíðin í Davíðshúsi heldur áfram í dag og henni lýkur á morgun.

Í dag er tveir fyrir einn tilboð, ef svo má segja því skáldið Gerður Kristný, sem var á dagskrá í gær en komst ekki norður vegna veðurs, kemur fram ásamt Vilhjálmi B. Bragasyni og hefst dagskráin hefst kl. 15.00.

  • Afmælisbarnið Jónas Hallgrímsson fær þá rými í stofu Davíðs frá Fagraskógi. Jónas, ég og Davíð er dagskrá á persónulegu nótunum þar sem Vilhjálmur B. Bragason flytur ljóð og hugleiðingar um skáldin stóru sem hafa fylgt honum í gegnum lífið. Vilhjálmur flytur ljóð Jónasar og Davíðs sem eru honum hugleikin ásamt sínum eigin verkum. Dagskráin er bæði í tali og tónum eins og við er að búast af Vilhjálmi.
  • Gerður Kristný les upp úr nýjustu bók sinni, Jarðljós, sem hlotið hefur frábæra dóma gagnrýnenda og enn betri viðtökur lesenda, segir í kynningu. „Gerði Kristnýju þarf vart að kynna enda löngu landsþekkt og nýtur aðdáunar langt út fyrir landsteinana fyrir orðsnilld sína. Hún hefur notið margs konar viðurkenningar fyrir skrif sín þar með talin Íslensku bókmenntaverðlaunin. Jarðljós er 10. ljóðabók Gerðar Kristnýjar og eflaust verða einhver ljóð úr fyrri bókum“

Stofutónleikar Alexanders á morgun

Litlu ljóðahátíðinni í Davíðshúsi lýkur á morgun kl. 16.00 með stofutónleikum píanóleikarans Alexanders Smára Edelstein sem flytur verk eftir Bach, Schubert, Chopin og Rachmaninoff.

Alexander lauk prófi frá Tónlistarskólann á Akureyri og BA gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2021. Hann lauk meistaragráðu frá Conservatorium Maastricht í Hollandi árið 2023 undir handleiðslu professor Katiu Veekmans.

Alexander hefur komið fram á fjölda tónleika bæði sem einleikari og með leikari. Hann er nú sjálfstætt starfandi tónlistarmaður og píanókennari við Tónlistarskólann á Akureyri.

„Óþarft er að taka fram að heimilismaðurinn Davíð tekur þátt með upplestri, þó ekki að handan heldur af hljómplötu,“ segir í tilkynningu.