Frjálsíþróttir
Brynjar Páll fékk gullið í hástökki á MÍ
27.02.2024 kl. 16:36
Brynjar Páll Jóhannsson í hástökkskeppni Meistaramóts Íslands í Laugardalshöll. Mynd af vef Frjálsíþróttasambndsins.
Brynjar Páll Jóhannsson úr Ungmennafélagi Akureyrar varð Íslandsmeistari í hástökki fullorðinna á Meistaramóti Íslands í frjálsíþróttum innanhúss sem fram fór í Laugardalshöllinni um fyrri helgi.
- Brynjar Páll, sem er aðeins 16 ára, stökk 1,82 m. Fleiri fóru yfir þá hæð en Brynjar fékk gullverðlaunin þar sem hann var sé eini sem fór yfir byrjunarhæðina.
- Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir varð önnur í 3000 m hlaupi og þriðja í 1500 m hlaupi. Hún sett persónulegt í báðum greinum; fór 3000 m á 10:05,95 mín. og 1500 m á 4:44,35 mín.
- Stefanía Daney Guðmundsdóttir keppti í 60m og langstökki. Hún setti Íslandsmeti í báðum greinum í sínum fötlunarflokki. Metin átti hún sjálf.
Ari Heiðmann Jósavinsson, yfirþjálfari meistaraflokks UFA, skrifar ferðasögu á heimasíðu félagsins þar sem hann greinir frá árangri annarra keppenda. Smellið hér til að lesa grein Ara.
- Akureyringurinn Kolbeinn Höður Gunnarsson sem keppir fyrir FH varð Íslandsmeistari bæði í 60 m og 200 m hlaupi, og auk þess í 4 x 200 boðhlaupi.
Smellið hér til að sjá öll úrslit á mótinu.