Fara í efni
Flugsafn Íslands

A! Gjörningahátíð á Akureyri í vikunni

Þriggja daga alþjóðleg gjörningahátíð verður haldin á Akureyri dagana 10.-12. október, á fimmtudag, föstudag og laugardag í þessari viku, undir heitinu A! Gjörningahátíð. Hátíðin fer nú fram í tíunda sinn og er sú eina sinnar tegundar á Íslandi þar sem einungis er um gjörningalist að ræða úr öllum listgreinum. Ókeypis er á alla viðburði hátíðarinnar.

Dómnefnd valdi verk úr hópi fjölbreyttra listamanna og eru gjörningar af öllum toga á dagskránni. Þátttakendur eru ungir og upprennandi listamenn, ásamt reyndum og vel þekktum gjörningalistamönnum.

Þátttakendur eru: Magnús Helgason, Hekla Björt Helgadóttir, Fríða Karlsdóttir, Dustin Scott Harvey, Ashima Prakesh og Éva Berki, Véný Skúladóttir, Christalena Hughmanick, Clare Almere, Henrik Koppen, Kristján Helgason, Guðmundur Steinn Gunnarsson og Birgir Sigurðsson, Snæfríður Sól Gunnarsdóttir, Kraftverk (Anna Kolfinna Kuran, Elín Signý Weywadt Ragnarsdóttir, Elísabet Birta Sveinsdóttir, Gígja Jónsdóttir og Guðrún Selma Sigurjónsdóttir), Heather Sincavage og Sarah Hammeken.

Gjörningahátíðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Leikfélags Akureyrar, Menningarhússins Hofs, Vídeólistahátíðarinnar Heim, Einkasafnsins, Gilfélagsins, Listnámsbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri og Menntaskólans á Akureyri.