Fara í efni
Ferðaþjónusta

Vinnslukerfi Slippsins í Júlíus Geirmundsson

Slippurinn DNG mun hanna, smíða og setja upp vinnslukerfi í Júlíus Geirmundsson, nýjan frystitogara sem smíðaður er á Spáni fyrir Hraðfrystihúsið - Gunnvöru hf (HG) í Hnífsdal. Samningur þar að lútandi var undirritaður nýverið við skipasmíðastöðina, Astilleros Amron í borginni Vigo.

Fyrr á árinu undirritaði HG samning við Astilleros Armon í Vigo á Spáni um nýsmíði á frystitogara sem mun leysa hinn 35 ára gamla Júlíus Geirmundsson af hólmi.

Samningur Slippsins DNG snýr að vinnslubúnaði fyrir millidekk frystitogarans.

„Samningurinn nær til búnaðar við móttöku afla, hausun, forflokkun í kælingu, flökun, snyrtingu og vigtun. Þar að auki fær vinnsla aukaafurða mun meira vægi en verið hefur og verða í kerfinu nýjungar í vinnslu þeirra,“ segir í tilkynningu frá Slippnum DNG.

Spennandi verkefni

Magnús Blöndal, sviðsstjóri hjá Slippnum DNG, segir verkefnið afar spennandi og að mikil viðurkenning felist í að Hraðfrystihúsið - Gunnvör hafi valið Slippinn DNG fyrir hönnun og framleiðslu vinnslukerfis í skipið. Um verði að ræða eitt fullkomnasta fiskiskip í norðurhöfum.

„Hönnun vinnslukerfisins er unnin í góðu samstarfi við HG og þar er lögð mikil áhersla á sveigjanleika til að vinna með mismunandi fisktegundir og marga afurðaflokka innan sömu tegundar og við erum fullvissir um að þetta verði mjög öflug vinnsla sem skili afurðum í sérflokki,“ segir Magnús.

Forflokkun fyrir flakavinnslu

Vinnslukerfið er þannig hannað að gert er ráð fyrir að allur afli sé hausaður strax til að auka gæði og þá tekur við sérstakur hráefnisflokkari frá Slippinn DNG sem forflokkar allan aflann fyrir flökun, snyrtingu og pökkun. „Þessi búnaður gerir að verkum að auðveldlega má vinna marga afurðaflokka úr hverri tegund og fiskurinn verður mun einsleitari í snyrtingu og pökkun sem léttir einnig á frystihóteli en þangað fer fiskurinn áður en hann fer á brettum í frystilest,“ segir í tilkynningunni.

„Öll hönnun miðast við að ná fram sem allra bestum afurðagæðum og hámarka afköst í vinnslunni um borð samhliða því,“ segir Magnús.

Í samningi Astilleros Armon skipasmíðastöðvarinnar og Hraðfrystihússins-Gunnvarar er gert ráð fyrir að smíði skipsins ljúki seinni hluta 2026.