Strandhandboltamót um verslunarmannahelgina
Áhugamenn um strandhandbolta geta tekið gleði sína því keppt verður í þessari skemmtilegu íþrótt í Kjarnaskógi um verslunarmannahelgina, eins og undanfarin ár.
Það er kvennalið KA/Þórs sem heldur mótið, sem verður hluti fjölskylduhátíðarinnar Einnar með öllu. Fullorðinsmót verður á laugardeginum og krakkamót daginn eftir.
Í tilkynningu kemur fram að færri hafi komist að en vildu á síðasta ári og áhugasamir því hvattir til að skrá sig til keppni sem fyrst.
Strákar og stelpur saman
Mótið verður spilað á strandblaksvöllunum í Kjarnaskógi og verður leikið í blönduðum flokki, það er að segja strákar og stelpur munu spila saman. Fjórir eru inná í hverju liði, þar af einn í marki.
„Strandhandbolti hefur notið gríðarlegra vinsælda hér á landi undanfarin ár og lofum við miklu stuði enda ræður léttleikinn ríkjum í sandinum. Flott mark gildir tvöfalt og því um að gera að sýna sínar bestu hliðar, við lofum svo að sjálfsögðu mikilli sól!“ segir í tilkynningu frá KA/Þór.
- Fullorðinsmótið, fyrir þau sem fædd eru 2008 og fyrr, fer fram laugardaginn 3. ágúst.
- Þátttökugjaldið er 25.000 krónur á lið og er hámark 5 í hverju liði.
- „Innifalið í gjaldinu er léttar veitingar og nóg af ísköldum drykkjum. Vegleg verðlaun verða veitt fyrir sigurliðið og einnig fyrir bestu tilþrifin og bestu búningana,“ segir í tilkynningu.
- Krakkamót, fyrir þau sem fædd eru 2009 - 2015, fer fram daginn eftir, sunnudaginn 4. ágúst í samvinnu við Eina með öllu og árlegan Skógardag Skógaræktarfélags Eyfirðinga, sem verður þann dag.
- Að minnsta kosti þurfa fjórir leikmenn að vera í hverju liði og leikur markmaður með í sókninni.
- Þátttökugjaldið er 15.000 krónur á lið og er hámark 5 í hverju liði. Innifalið í gjaldinu er pítsuveisla.
- Skráning fer fram hjá agust@ka.is og mikilvægt er að taka fram nafn á liði við skráningu, að því er segir í tilkynningunni.