Covid-19
Þrjú smit í gær - enginn á Covid deildum SAk
23.11.2020 kl. 11:20
Hjúkrunarfræðingarnir Berglind Júlíusdóttir, verkefnastjóri Covid göngudeildar SAk, og Sigríður Sólveig Stefánsdóttir ásamt Pálma Óskarssyni yfirlækni. Þau sinna öðrum en Covid sjúklingum þessa dagana. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson
Þrír greindust Covid-smitaðir innanlands í gær, þar af voru tveir í sóttkví. Tíu reyndust smitaðir við skimun við komu til landsins. Enginn liggur á Covid-deildum Sjúkrahússins á Akureyri eins og er, einn var þar fyrir helgi - á gjörgæslu - en var útskrifaður um helgina.
Á upplýsingafundi almannavarna, sem nú stendur yfir, benti Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, á að vilji þeir Íslendingar sem búa erlendis ná að verja jólahátíðinni með sínum nánustu sé síðasti mögulegi komudagur til landsins 18. desember. Verklag verði óbreytt á landamærum, tvöföld sýnataka og fimm til sex daga sóttkví á milli, og fólk þyrfti því að koma tímanlega til að eiga möguleika á að vera laust úr sóttkví á aðfangadag.