Ekki ber á veikindum á Norðurlandi eystra
Greind hafa verið 115 kórónuveirusmit hérlendis eftir sýnatöku gærdagsins en sú tala gæti hækkað þar sem enn hafa ekki öll sýni verið rannsökuð. Nú eru 17 íbúar á Norðurlandi eystra í einangrun og 51 í sóttkví.
Ekki ber enn á veikindum í landshlutanum. „Bylgjan hefur enn ekki risið jafn hátt hlutfallslega hér og fyrir sunnan,“ segir Sigurður E. Sigurðsson, framkvæmdastjóri lækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri við Akureyri.net. „Allir nema einn sem eru í einangrun eru skráðir grænir; eru með tiltölulega væg einkenni, en einn er skráður gulur. Sá er undir eftirliti.“
Sjúkrahúsið á Akureyri er nú á óvissustigi „sem kallar á að við setjum okkur í gírinn. Við höfum ekki misst starfsmenn úr vinnu að neinu ráði, nema einn og einn dag í úrvinnslusóttkví ef einhver hefur fengið einkenni, en enginn hefur veikst. Vonandi verður svo áfram.“
Í fyrradag greindust 123 smitaðir hérlendis og hafa ekki verið fleiri á einum degi síðan faraldurinn hófst. Átta manns liggja á Landspítalanum vegna Covid-19, þar af einn á gjörgæsludeild.