Covid-19
Bólusetning í boði á ný á morgun
05.01.2022 kl. 10:05
Bólusett á slökkvistöðinni á Akureyri í nóvember. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.
Bólusetning fyrir Covid-19 hefst á ný á morgun, fimmtudag 6. janúar, á slökkvistöðinni á Akureyri. Opið verður frá klukkan 13.00 til 16.00.
„Öllum 16 ára og eldri býðst örvunarskammtur þegar að lágmarki 5-6 mánuðir eru liðnir frá grunnbólusetningu,“ segir í tilkynningu frá Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Þar kemur fram að þeim, sem ekki hafi hafið bólusetningu eða ekki hafa getað nýtt sér fyrri boð, sé velkomið að koma á auglýstum tíma á Akureyri. Ekki sé þörf á að hafa strikamerki með í för, bara mæta á staðinn.
- Bólusettir einstaklingar 70 ára og eldri geta fengið örvunarskammt þegar 3 mánuðir hafa liðið frá grunnbólusetningu.
- Börn sem hafa náð 12 ára aldri eru velkomin í sína fyrstu bólusetningu í fylgd forráðamanna.
- Bólusett verður með Pfizer, óháð því bóluefni sem notað var við grunnbólusetningu.
- 14 dagar þurfa að líða milli inflúensubólusetningar og bólusetningar gegn COVID-19.
- Þeir sem hafa fengið staðfest Covid 19 smit þurfa að láta líða a.m.k 3-6 mánuði frá veikindum að bólusetningu.
- Minnt er á að vegna fjölgunar smita í samfélaginu er grímuskylda á bólusetningarstað og fólk er beðið að virða 2 metra regluna.