Covid-19
50 mega koma saman og skemmtistaðir opnaðir
28.01.2022 kl. 12:05
Stefnt er að því að aflétta öllum sóttvarnartakmörkunum vegna Covid-19 á næstu sex til átta vikum. Frá og með miðhætti taka ýmsar breytingar gildi að því er heilbrigðis- og forsætisráðherra kynntu eftir fund ríkisstjórnarinnar í morgun.
Helstu breytingar eru þessar, að því er segir á vef stjórnarráðsins:
- Almennar fjöldatakmarkanir fari úr 10 í 50 manns.
- Nándarregla fari úr 2 metrum í 1 metra.
- Óbreytt grímuskylda, sem tekur þó almennt mið af nándarreglu.
- Sund-, baðstaðir, líkamsræktarstöðvar og skíðasvæði mega hafa opið með 75% afköstum.
- Íþróttakeppni verði áfram heimil með 50 þátttakendum og áhorfendur séu leyfðir á ný.
- Hámarksfjöldi í verslunum geti mest orðið 500 manns.
- Skemmtistöðum, krám, spilastöðum og spilakössum verði heimilað að opna á ný.
- Veitingastöðum, þ.m.t. krám og skemmtistöðum, verði heimilt að hleypa inn nýjum viðskiptavinum til kl. 23.00 en gestum verði gert að yfirgefa staðina á miðnætti.
- Á sitjandi viðburðum verði heimilt að taka á móti allt að 500 gestum í hverju hólfi, viðhalda skuli 1 metra nándarreglu milli óskyldra aðila auk grímuskyldu. Ekki verði þörf á hraðprófum.
- Í skólum verði óbreyttar takmarkanir, þó þannig að þær verði aðlagaðar framangreindum tilslökunum eftir því sem við á.
Reglugerðin gildir í tæpar fjórar vikur, til og með 24. febrúar.
Smellið hér til að sjá nánari upplýsingar