Öruggur sigur og KA efst í neðri hlutanum
KA tryggði sér efsta sæti neðri hluta Bestu deildar karla í knattspyrnu með mjög öruggum sigri á Fram, 4:1, á útivelli í dag. KA endar þar með í sjöunda sæti deildarinnar og KR, sem gjörsigraði HK 7:0, í því áttunda.
Ásgeir Sigurgeirsson kom KA yfir aðeins 15 mínútur og fjórum mínum síðar hafði Rodri komið KA í 2:0 eftir góða sendingu Hrannars Björns Steingrímssonar.
Litlu munaði að Ásgeir kæmi KA í 3:0 snemma í seinni hálfleik en Ólafur Íshólm varði vel og Framarar voru sterkari fyrri hluta hálfleiksins. Tryggvi Snær Geirsson minnkaði muninn þegar 20 mín. voru búnar en 10 mín. síðar gerði Hallgrímur Mar Steingrímsson þriðja mark KA með föstu skoti úr teignum og hann gerði einnig fjórða markið aðeins fjórum mín. síðar. Hallgrímur skoraði þá örugglega úr víti eftir að Kennie Chopart braut á honum.
„Virkilega ánægðir með tímabilið“
„Ég er mjög ánægður. Það stendur upp úr að verða bikarmeistarar í fyrsta skipti í sögunni. Við gerðum þetta svo mjög vel eftir að það verð ljóst að við enduðum í neðri hlutanum og endum í sjöunda sæti. Við erum virkilega ánægðir með þetta tímabil,“ sagði Hallgrímur Jónasson þjálfari KA við mbl.is eftir leikinn.
„Við vildum vinna þennan neðri hluta og það tókst. Í staðinn fyrir að detta niður þá héldum við áfram og gerðum þetta almennilega allan tímann. Við leyfðum líka ungum strákum að fá mínútur og við stöndum fyrir það hjá KA,“ sagði Hallgrímur.