Háskóladagurinn verður á Akureyri 12. mars

Á laugardaginn kemur, þann 1. mars, hefst dagskrá Háskóladagsins, þegar allir háskólar landsins kynna grunnnám sitt á neðri hæð Háskólatorgs Háskóla Íslands. Fulltrúar frá Háskólanum á Akureyri mæta að sjálfsögðu og kynna sig þar. Næst fer öll hersingin austur á Höfn í Hornafirði, 10. mars, Egilsstaði 11. mars og að síðustu verður kynning á öllum í Háskólanum á Akureyri, þann 12. mars kl. 11.00-13.00.
Mikils virði að kynna sér námið frá fyrstu hendi
„Háskóladagurinn er samstarfsverkefni allra íslenskra háskóla,“ segir Sólveig María Árnadóttir, verkefnastjóri viðburða hjá HA. „Fyrirkomulag dagsins hefur þróast í gegnum árin. Þegar ég sjálf var stúdent við HA þá fór af stað hringferð um landið og voru allir framhaldsskólar landsins sóttir heim, svo dæmi sé tekið. Nú er þetta hinsvegar þannig að við heimsækjum Egilsstaði, Höfn, Vestmannaeyjar og Ísafjörð annað hvert ár og erum í Reykjavík og á Akureyri hvert ár. Við leggjum okkur fram við að bjóða nærliggjandi framhaldsskólum á Háskóladaginn og þannig tryggjum við að framhaldsskólanemar á landsbyggðinni fái allir að komast á Háskóladaginn á einhverjum tímapunkti skólagöngunnar.“
Okkar fólk er ómetanlegt þegar kemur að því að kynna háskólann okkar
„Um helgina verður fyrsta kynningin en hún er haldin í Reykjavík,“ segir Sólveig María. „Stúdentar sem stunda nám við hverja námsleið standa vaktina við bása námsleiða ásamt því sem fjöldi starfsfólks tekur þátt í deginum. Ég tel mikið virði í því að fá að kynnast því hvernig er að vera HA-ingur frá fyrstu hendi. Okkar fólk er ómetanlegt þegar kemur að því að kynna háskólann okkar og það er ekki sjálfsagt að öll séu alltaf boðin og búin til að leggja hönd á plóg. Það kemur þó ekkert á óvart, Háskólinn á Akureyri er eitt stórt samfélag.“
Mörg eru ekki meðvituð um fjölbreytnina sem er í boði
„Það getur verið frekar yfirþyrmandi að velja sér háskólanám enda er svo margt í boði. Eitt af því skemmtilegasta sem ég upplifi á Háskóladaginn er þegar ég hitti væntanlega stúdenta sem eru búnir að ákveða að fara í eitthvað ákveðið nám en rekast svo á einhverja námsleið sem þeir vissu jafnvel ekki að væri til. Við eigum ansi mörg dæmi um slíka stúdenta sem stunda nú nám við HA,“ bætir Sólveig María við.
Óviss um hvað þig langar að læra? Á vef Háskóladagsins má finna allar helstu upplýsingar um Háskóladaginn. Þá er á vefnum að finna yfirlit yfir allt nám á öllum stigum sem í boði er við háskóla landsins. Þá býður leitarvélin á vefnum fólki upp á að setja inn áhugasvið í orði og hún finnur öll nám sem eiga við.
Hér má nálgast viðburðinn á hverjum stað fyrir sig á Facebook: