Fara í efni
Akureyrarvaka

Segja afdrifarík mistök hafa bitnað á KA-liðinu

Rekistefna við borð ritara og tímavarðar undir lok leiks KA og Stjörnunnar. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Handknattleiksdeild KA telur afdrifarík mistök hafa verið gerð undir lok leiksins við Stjörnuna á fimmtudagskvöldið; rangt hafi verið að refsa KA-liðinu eins og gert var eftir að þjálfari liðsins hugðist taka leikhlé. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem birt var á heimasíðu KA í kvöld.

„Um er að ræða afdrifarík mistök sem mögulega kostuðu KA sigur í leiknum en ekkert virðist benda til þess að sú ákvörðun að dæma boltann af KA og reka leikmann af velli sé rétt auk þess að réttur liðsins til að taka síðasta leikhlé sitt í leiknum var tekinn af liðinu,“ segir í yfirlýsingunni.

Ekki sé þó heimilt að spila síðustu sekúndur leiksins að nýju, KA muni því una niðurstöðunni en harmar mistökin og vonar að allir innan handboltahreyfingarinnar læri af þeim.

Yfirlýsingin í heild er svohljóðandi:

Handknattleiksdeild KA vill koma því á framfæri að vel athuguðu máli sem og eftir samtöl við málsmetandi aðila innan handknattleikshreyfingarinnar og skoðun á lögum og reglum HSÍ er talið ljóst að mistök hafi verið gerð í lok leiks KA og Stjörnunnar fimmtudagskvöldið 31. október sl. er varðar meðhöndlun á því þegar þjálfari KA hugðist taka leikhlé á lokamínútu leiksins.

Um er að ræða afdrifarík mistök sem mögulega kostuðu KA sigur í leiknum en ekkert virðist benda til þess að sú ákvörðun að dæma boltann af KA og reka leikmann af velli sé rétt auk þess að réttur liðsins til að taka síðasta leikhlé sitt í leiknum var tekinn af liðinu.

Hinsvegar er ekkert í lögum HSÍ sem heimilar að spila síðustu sekúndur leiksins að nýju og fyrir því liggja dómafordæmi frá fyrri árum. Handknattleiksdeild KA mun því una niðurstöðu leiksins en harmar þó þau mistök sem gerð voru og vonar að allir innan handknattleikshreyfingarinnar dragi af þeim lærdóm.

Áfram handbolti og áfram KA!

Frétt Akureyri.net um leikinn