Fara í efni
Alþingiskosningar 2024

Ingvar Þóroddsson efstur á lista Viðreisnar

Ingvar Þóroddsson, framhaldsskólakennari á Akureyri verður í 1. sæti lista Viðreisnar í Norðausturkjördæmi.

Ingvar Þóroddsson, framhaldsskólakennari á Akureyri, verður í 1. sæti lista Viðreisnar í Norðausturkjördæmi við kosningarnar til Alþingis 30. nóvember næstkomandi.

Í öðru sæti er Heiða Ingimarsdóttir, verkefnastjóri upplýsinga- og kynningamála á Egilsstöðum. Þriðja sætið skipar Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, kennari og þjálfari á Akureyri og í fjórða sæti er Gabríel Ingimarsson, rekstrarstjóri Hríseyjarbúðarinnar og forseti Uppreisnar. Hjálmar Pálsson, sölustjóri hjá Hnýfli, reykhúsi/fiskvinnslu skipar fimmta stæði og Arna Garðarsdóttir, verkefnastjóri skipar það sjötta.

„Ég er mjög þakklátur fyrir traustið sem mér er sýnt og þann stuðning sem ég hef fengið frá fólki hvaðan af úr kjördæminu. Þetta er gríðarlega öflugur listi og ég er spenntur fyrir því að heyja þessa kosningabaráttu. Sérstaklega fyrir þau sem eru að kaupa sér sitt fyrsta húsnæði, stofna fjölskyldu og jafnvel fyrirtæki. Fólkið sem vill skapa verðmæti fyrir sig og sitt nærsamfélag. Ég vil beita mér fyrir þennan hóp,“ segir Ingvar í tilkynningu sem Viðreisn sendi út í dag.

„Mér finnst oft gleymast að fólk hefur líka möguleika á að kjósa með fótunum og það þekkja eflaust allir ungt vel menntað fólk sem hefur ílengst erlendis eftir nám einfaldlega vegna þess að þeim finnst ekki vænlegur kostur að flytja heim, meðal annars vegna hárra vaxta og verðbólgu. Það er staða sem við megum ekki sætta okkur við.“

Ingvar Þóroddsson, Heiða Ingimarsdóttir, Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir og Gabríel Ingimarsson. 

Framboðslisti Viðreisnar í Norðausturkjördæmi í heild sinni:

  1. Ingvar Þóroddsson, framhaldsskólakennari, Akureyri
  2. Heiða Ingimarsdóttir, verkefnastjóri upplýsinga og kynningarmála, Egilsstaðir
  3. Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, kennari og þjálfari, Akureyri
  4. Gabríel Ingimarsson, rekstrarstjóri Hríseyjarbúðarinnar og forseti Uppreisnar, Hrísey
  5. Hjálmar Pálsson, sölustjóri Hnýfill reykhús/fiskvinnsla, Akureyri
  6. Arna Garðarsdóttir, verkefnastjóri, Akureyri
  7. Páll Baldursson, verkefnastjóri hjá Austurbrú, Egilsstaðir
  8. Dusanka Kotaras, matráður Giljaskóla, Akureyri
  9. Davíð Brynjar Sigurjónsson, kennari, Eskifirði
  10. Rut Jónsdóttir, forstöðumaður umhverfis- og úrgangsmála, Akureyri
  11. Eyþór Möller Árnason, samskiptafulltrúi, Grenivík
  12. Urður Arna Ómarsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri Seyðisfjarðarskóla, Seyðisfjörður
  13. Ari Erlingur Arason, söngvari, Húsavík
  14. Halla Rut Ákadóttir, háskólanemi, Akureyri
  15. Björn Grétar Baldursson, flugumferðarstjóri, Akureyri
  16. Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, þroskaþjálfi og stjórnsýslufræðingur, Reyðarfjörður
  17. Valtýr Þór Hreiðarsson, rekstrarhagfræðingur, Akureyri
  18. Draumey Ósk Ómarsdóttir, stuðningur á leikskóla og háskólanemi, Reykjavík
  19. Guðmundur Aðalsteinsson, skógarbóndi, Egilsstöðum
  20. Ólöf Ýrr Atladóttir, framkvæmdastjóri, Siglufjörður