Fara í efni
Mannlíf

Viltu láta ljós þitt skína í Svörtum bókum?

Stu Gates, annar eigandi fornbókaverslunarinnar Svartar bækur, í dyragættinni á Strandgötu 11b. Verslunin, sem er í bakhúsi, hefur verið svolítið falin en fleiri og fleiri eru að átta sig á staðsetningu hennar enda komin inn á Google Maps. Mynd:SNÆ

Fornbókasalarnir í versluninni Svartar bækur ætla að bjóða upp á opinn hljóðnema miðvikudagskvöldið 5. febrúar. Gestir og gangandi geta þá stigið á stokk í versluninni og flutt ljóð, brandara, sungið eða hvað annað sem fólki dettur í hug að gæti verið gaman að koma á framfæri. 

„Við höfum undanfarið verið að horfa aftur á sjónvarpsþáttaseríuna Schitt´s Creek.  Aðalpersónur þáttanna, David og Patrick, reka verslun og  til að trekkja að viðskiptavini ákveða þeir að bjóða upp á opinn hljóðnema í versluninni. Það minnti okkur á  að við ætluðum alltaf að vera með opinn hljóðnema í versluninni Fróða í Gilinu, en við gerðum það aldrei. Svo við ákváðum að láta vaða núna, nú þegar við erum búnir að koma okkur betur fyrir á nýjum stað“, segir Stu Gates sem rekur Svartar bækur ásamt eiginmanninum, Ren Títus Gates. 

 


Það er nóg til af bókum í fornbókabúðinni Svartar bækur. Eigendurnir hafa líka hug á því að bjóða þar stundum upp á viðburði. Á miðvikudaginn næsta verður þar fyrsti opni hljóðneminn haldinn milli kl. 19 og 22. Frítt inn og veitingar í boði.  

Faldir í bakhúsi í miðbænum

Eins og Akureyri.net hefur áður greint frá lokaði Fróði fornbókaverslun í Gilinu síðasta haust, en þeir Stu og Ren opnuðu nýja verslun undir heitinu Svartar bækur í miðbænum. Stu segir að verslunin sé ekki eins sýnileg og þegar þeir voru í fornbókarekstri í Gilinu en verslun þeirra er núna til húsa í bakhúsi við Strandgötuna, hjá bílastæðinu P2, við hliðina á Ísbúð Akureyrar.

„Þetta rými er allt öðruvísi heldur en það sem við vorum með í Gilinu og það hefur tekið tíma að gera það að okkar en nú erum við að verða sáttir með það,“ segir Stu og bætir við fleiri og fleiri séu að uppgötva hvar þeir séu til húsa í bænum. Þá segir hann að þeim langi til þess að standa fyrir fleiri viðburðum í versluninni en áður en þeir fluttu höfðu þeir boðið upp á tónleika í versluninni í Gilinu og ljóðakvöld en þetta er í fyrsta skipti sem þeir standa fyrir opnum hljóðnema og jafnframt í fyrsta sinn sem þeir standa fyrir viðburði á nýja staðnum. „Vonandi gefur þetta okkur hvatningu til þess að standa fyrir fleiri viðburðum. Við látum a.m.k. á þetta reyna,“ segir Stu og lofar kaffi og léttum veitingum.

Stór og smá atriði leyfileg

Aðspurður að því hvort Stu haldi að Akureyringar séu tilbúnir til þess að láta ljós sitt skína með þessum hætti, segir hann að það sé a.m.k. nóg af hæfileikaríku fólki í bænum. Þá bætir hann við að fólk þurfi ekki að stíga á stokk með eitthvað stórt. Fólk getur t.d. mætt með uppáhaldsljóðið sitt og deilt því með öðrum og þá getur fólk flutt sín atriði á hvaða tungumáli sem er.  Sjálfir munu þeir stíga á stokk með eitthvað enda segir Stu að hefðin sé sú að gestgjafar fari fram með góðu fordæmi og gefi af sér á svona opnum hljóðnemum en hann vill þó ekkert gefa uppi varðandi hvað það verður.

F

Meira en bara fornbókabúð. Gestir geta sest niður og tekið eina skák í versluninni Svartar bækur. Þá er einnig hægt að panta lófalestur og lestur í tarotspil hjá Stu.