Vignir býður sig fram til formanns KSÍ
Vignir Þormóðsson býður sig fram til embættis formanns Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ). Þetta kemur fram í tilkynningu sem hann sendi frá sér rétt í þessu. Vignir var lengi formaður knattspyrnudeildar KA og sat í stjórn KSÍ frá 2007 til 2019.
Tilkynning Vignis er svohljóðandi:
Vignir Már Þormóðsson, fyrrum stjórnarmaður í KSÍ, hefur ákveðið að gefa kost á sér í kjöri formanns KSÍ sem fram fer á ársþingi sambandsins, 24. febrúar nk.
Vignir sat í aðalstjórn KSÍ á árunum 2007 til 2019 og var áður formaður knattspyrnudeildar KA í tæp 7 ár. Þá hefur hann síðustu tíu ár verið starfandi eftirlitsmaður knattspyrnuleikja á vegum UEFA, Knattspyrnusambands Evrópu.
„Ég þekki knattspyrnuhreyfinguna og innviði hennar vel, bæði hér heima og á alþjóðavísu, enda hefur íþróttin átt hug minn og hjarta frá því ég var ungur drengur. KSÍ gegnir afar veigamiklu samfélagslegu hlutverki en starfsemi sambandsins er umfangsmikil og teygir anga sína um allt land. Hlutverk sambandsins er meðal annars að vera andlit knattspyrnuhreyfingarinnar á Íslandi á afrekssviði með landsliðum sínum, sem hafa verið stolt okkar allra og borið hróður landsins um víða veröld. Ekki síður gegnir KSÍ mikilvægu hlutverki í ræktun á veigamiklu uppeldis- og grasrótarstarfi inni í félögunum, sem er bæði ómetanlegt og viðurkennt. Formaður KSÍ á að sameina allt áhugafólk um íþróttina í eina breiðfylkingu – ég tel mig mjög hæfan í það hlutverk. Eftir að hafa velt stöðu mála gaumgæfilega fyrir mér síðustu vikur hef ég ákveðið að bjóða mig fram til formanns KSÍ á ársþingi sambandsins,“ segir Vignir Már Þormóðsson.
- Vignir er annar Akureyringurinn sem verður í framboði til formanns á ársþingi KSÍ sem fram fer síðar í mánuðinum. Hinn er Þorvaldur Örlygsson, fyrrverandi leikmaður og þjálfari KA, sem nú er starfsmaður Stjörnunnar í Garðabæ. Sá þriðji sem verður í framboði er Guðni Bergsson, fyrrverandi formaður KSÍ.
Vignir Már Þormóðsson býður sig fram til formennsku í KSÍ.