Fara í efni
Fréttir

Verðlaunaður fyrir afburðaárangur

Óðinn Andrason og Vigdís Finnbogadóttir við afhendingu styrksins á Litla Torgi í gær. Mynd af vef Háskóla Íslands: Gunnar Sverrisson

Akureyringurinn Óðinn Andrason, BS-nemi á þriðja ári í vélaverkfræði við Háskóla Íslands, hefur hlotið styrk úr Minningarsjóði Þorvalds Finnbogasonar stúdents. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, afhenti styrkinn ásamt frú Vigdísi Finnbogadóttur, systur Þorvalds.

Greint er frá þessu á vef Háskóla Íslands. Þar kemur fram að sjóðurinn styrkir árlega efnilega nema í verkfræði við Háskóla Íslands til framhaldsnáms. Sá nemandi sem er með hæstu meðaleinkunn eftir annað ár í grunnnámi hlýtur styrkinn hverju sinni.

Óðinn lauk stúdentsprófi af raungreinabraut Menntaskólans á Akureyri árið 2022 og var semidúx skólans. Hann hóf nám við Háskóla Íslands sama ár og hlaut styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði Háskóla Íslands, sem veittur er nýnemum sem náð hafa framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs. Óðinn var í ólympíuliði Íslands í stærðfræði árið 2021 og tók þátt í Evrópsku Ólympíuleikunum í eðlisfræði árið 2022 þar sem hann hlaut heiðursverðlaun. Óðinn stundaði sumarnám við Stanford University sumarið 2024 í svonefndu Stanford Summer International Honors Program. Hann stefnir á framhaldsnám í vélaverkfræði í Bandaríkjunum.

Minningarsjóður Þorvalds Finnbogasonar stúdents var stofnaður af foreldrum hans, Sigríði Eiríksdóttur og Finnboga Rúti Þorvaldssyni, prófessor og forseta verkfræðideildar Háskóla Íslands. Árlega er veitt viðurkenning úr sjóðnum til afburðanemanda í verkfræði við Háskóla Íslands. Sjóðurinn var stofnaður á 21 árs afmæli Þorvalds, hinn 21. desember 1952.

Vigdís Finnbogadóttir ræðir um bróður sinn og stofnun sjóðsins.