Fréttir
Úrskurðaður í gæsluvarðhald í viku
22.04.2024 kl. 21:30
Konan lést í þessu fjölbýlishúsi í Naustahverfi. Mynd: Þorgeir Baldursson
Karlmaður á Akureyri hefur verið úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í tengslum við andlát konu í fjölbýlishúsi í í Naustahverfi síðastliðna nótt. Talið er að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti, að því er lögreglan tilkynnti í hádeginu. RÚV segir í kvöld að maðurinn sé grunaður um að hafa valdið dauða konunnar.
Lögreglan á Norðurlandi eystra rannsakar málið og nýtur aðstoðar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Frétt Akureyri.net fyrr í dag: