Upp kirkjutröppurnar á jólatónleika Hymnodiu
Kirkjutröppurnar á Akureyri verða formlega teknar á ný á morgun, sunnudaginn 22. desember, kl. 16.00 og þá opnar Akureyrarkirkja dyr sínar til að samfagna endurbótunum á þessum mikilvæga hluta af ásýnd Akureyrar. Klukkan níu um kvöldið verða svo jólatónleikar Hymnodiu sem hafa verið fastur liður um árabil í Akureyrarkirkju daginn fyrir Þorláksmessu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá kórnum.
„Að þessu sinni verður kyrrð og friður í fyrirrúmi á tónleikunum. Eyþór Ingi Jónsson stendur og stjórnar milli þess sem hann sest við flygilinn og jafnvel Hammondinn ef sá gállinn er á honum,“ segir í tilkynningunni. „Á efnisskránni eru rúmlega tuttugu jólalög sem kórfélagar hafa valið til flutnings á tónleikunum ásamt Eyþóri Inga. Sum laganna verða flutt í syrpum með spunaívafi. Á tónleikunum má búast við óvæntum endi miðað við fyrri jólatónleika Hymnodiu, kyrrlátri útgáfu af einu af þekktustu jólalögum heimsins.“
Miðasala er á tix.is og við innganginn.