Undirbúa alþjóðlegt siglingamót á Pollinum
Alþjóðlegt siglingamót, Rs Aero Arctic, hefst á Pollinum við Akureyri á mánudaginn og stendur til miðvikudags. Þetta er fyrsta alþjóðlega mótið í kænusiglingum á Íslandi í aldarfjórðung, síðan Smáþjóðaleikarnir fóru fram í Reykjavík 1997, og það fyrsta á Akureyri.
Siglingaklúbburinn Nökkvi fékk senda 16 keppnisbáta erlendis frá, báta af nýjustu gerð, sem leigðir eru fyrir mótið og tveir slíkir að auki eru sendir frá Reykjavík. Bátarnir 16 komu í tveimur gámum til Akureyrar og voru þeir Tryggvi Heimisson, formaður Nökkva, og Ragnar Rúnar Svavarsson stjórnarmaður nýbúnir að opna gámana þegar Akureyri.net leit við í gær.
„Þetta eru nýjustu tækin fyrir keppni í einmenningsflokki, þar sem einn keppir í hverjum bát í fullorðinsflokki,“ segir Tryggvi. „Þróunin í plastefnum er mikil og þessir bátar eru mjög léttir.“
Keppendur á mótinu eru um 20, þar af liðlega helmingur útlendingar sem koma frá sjö löndum, Bandaríkjunum, Kanada og frá Evrópu. Æfingadagur verður á morgun, sunnudag, en keppni hefst á mánudagsmorgun.