Fara í efni
Fréttir

Umferðartruflanir við tvö hringtorg

Akureyrarbær hefur tilkynnt um truflanir á umferð  í kvöld og á morgun, 28.-29. ágúst, vegna malbikunarvinnu við tvö hringtorg. Annars vegar við hringtorgið á Hlíðarbraut og Borgarbraut og hins vegar við hringtorgið á Miðhúsabraut við Kjarnagötu og Dalsbraut, sjá áætlaðar tímasetningar hér fyrir neðan.

  • Miðvikudagur 28. ágúst, vegna fræsingar:
    - Hringtorg á Hlíðarbraut og Borgarbraut lokað fyrir umferð upp úr kl. 17 og lokað fram eftir kvöldi
    - Hringtorg á Miðhúsabraut við Dalsbraut og Kjarnagötu fræst á eftir hinu og opið fyrir umferð á meðan.
  • Fimmtudagur 29. ágúst, vegna yfirlagna
    - Hringtorg á Miðhúsabraut við Dalsbraut og Kjarnagötu lokað kl. 12 og fram eftir kvöldi
    - Hringtorg á Hlíðarbraut og Borgarbraut lokað aftur upp úr kl. 17-18 og lokað fram eftir kvöldi