Fara í efni
Fréttir

Umferðartakmarkanir í bænum um helgina

Að venju verður umferð takmörkuð um ákveðnar götur í tengslum við viðburði hátíðarinnar Einnar með öllu sem haldin verður á Akureyri um helgina. Tilgangurinn með lokununum er að tryggja öryggi gesta og þátttakenda í viðburðunum. Ákveðnum götum eða götuhlutum í miðbænum verður lokað frá fimmtudagskvöldi og út helgina, en öðrum að hluta eða öllu leyti í tengslum hlaupaleiðir í Súlur vertical hlaupinu og lokatónleika hátíðarinnar.

  • Í allt sumar
    Göngugata - Hafnarstræti frá Kaupvangsstræti að Skipagötu, lokuð í allt sumar
  • Frá kl. 18 fimmtudaginn 1. ágúst til hádegis mánudaginn 5. ágúst
    - Listagilið, Kaupvangsstræti frá Skipagötu að Eyrarlandsvegi, lokað frá kl. 18 á fimmtudegi til hádegis mánudaginn 5. ágúst
    - Túngata frá Gránufélagsgötu að Strandgötu
    - Strandgata frá Hofsbót að Ráðhústorgi
    - Skipagata frá Hofsbót að Ráðhústorgi 
  • Takmörkun á umferð og umferðarhraða frá kl. 20:30 sunnudaginn 5. ágúst þar til fimm mínútum yfir miðnætti
    - Drottningarbraut frá Kaupvangsstræti að Aðalstræti
    - Austurbrú
    - Hafnarstræti frá Kaupvangsstræti að Suðurbrú
    - Suðurbrú (milli Hafnarstrætis og Drottningarbrautar)
  • Leyfilegt að leggja í vegarkanti
    - Drottningarbraut frá Aðalstræti suður að Leiruvegi
  • Umferðarstýring og götulokanir vegna Súlur vertical hlaupsins laugardaginn 3. ágúst kl. 11-18, eða þar til síðasti hlaupari kemur í mark
    - Gangbraut yfir Hlíðarbraut við Hlíðarfjallsveg
    - Borgarbraut frá Norðurslóð að göngustíg við Klettaborg
    - Klettaborg (frá nr. 5) að Byggðavegi og yfir Byggðaveg eftir Sjafnarstíg
    - Þórunnarstræti frá Sjafnarstíg að Brekkugötu
    - Brekkugata, umferðarstýring að Helgamagrastræti
    - Brekkugata, lokað frá Helgamagrastræti niður að Ráðhústorgi, Klapparstígur einnig lokaður

Sjá einnig á myndunum hér að neðan og á akureyri.is.