Umfangsmesta mengunarslys á vatnsverndarsvæði Norðurorku
Olía lak úr rútu sem valt út af veginum í Öxnadal í gær og mengunarslysið er hið mesta sem orðið hefur á vatnsverndarsvæði Norðurorku. Þetta kemur fram á vef fyrirtækisins.
Umrætt vatnsverndarsvæði nær inn að vatnaskilum á Öxnadalsheiði og fljótlega kom í ljós að mikilvægt væri að grípa til aðgerða til að fyrirbyggja að mengunin hefði áhrif á vatnsverndarsvæðið.
Í tilkynningu á vef Norðurorku segir meðal annars:
- Neysluvatnsdæling frá vatnstökusvæðinu á Vöglum var stöðvuð af öryggisástæðum og mengunarvarnabúnaði komið fyrir í og við ána.
- Árkvísl sem liggur næst veginum var stífluð ofan við slysstað til að stöðva vatnsrennsli við mengaðan árbakkann.
- Þegar mengaður jarðvegur var grafinn upp safnaðist fyrir olía í holunni og var gripið til þess ráðs að brenna olíuna til að eyða henni á staðnum og fyrirbyggja að hún færi lengra.
- Seinna kom dælubíll á staðinn og var olíunni þá dælt upp.
- Mat Norðurorku og Heilbrigðiseftirlitsins er að búið að sé að ná stjórn á aðstæðum og tryggja að olíulekinn hafi ekki áhrif á vatnstökusvæðið sjálft.
- Neysluvatnsdæling frá Vöglum er því hafin að nýju. Starfsfólk Norðurorku og verktakar eru enn á staðnum að hreinsa upp mengaðan jarðveg og ferja hann út af vatnsverndarsvæðinu.
- Ljóst er að þetta mengunarslys er það umfangsmesta sem orðið hefur á vatnsverndarsvæði Norðurorku. Skjót og rétt viðbrögð skipta sköpum við aðstæður sem þessar en unnið er samkvæmt viðbragðsáætlun vatnsveitu og neyðarstjórn Norðurorku var virkjuð.
HVAÐ ER VATNSVERNDARSVÆÐI?
Á vef Norðurorku er fjallaðð um vatnsverndarsvæði, þar sem segir meðal annars:
Kalda vatnið flokkast sem matvara og því eru gerðar strangar kröfur um vatnsvernd.
Í kringum vinnslusvæðin okkar hafa verið skilgreind vatnsverndarsvæði og ræðst stærð og lögun þeirra af landfræðilegum aðstæðum. Vatnsverndarsvæði skiptast í brunnsvæði, grannsvæði og fjarsvæði og eru þau skilgreind nánar í reglugerð.
Vaglir við Þelamörk í Hörgársveit
- Þar sem vatnsverndarsvæðin í Hlíðarfjalli anna ekki vatnsþörf Akureyringa þurfa Akureyringar einnig, til viðbótar við vatnsverndarsvæðin í Hlíðarfjalli, að treysta á vatnsverndarsvæðið á Vöglum í Hörgárdal
- Á Vaglaeyrum hafa verið boraðar holur í eyrar Hörgár og er vatni dælt upp úr þeim og til Akureyrar. Eins og sjá má á myndinni hér að neðan þá er vatnsverndarsvæðið tiltölulega stórt enda er fjarsvæðið í raun allt vatnasviðið.
- Þjóðvegur 1 liggur í gegnum grannsvæðið, rétt ofan brunnsvæðis, með tilheyrandi ógn fyrir vatnsverndina á svæðinu.
Umrætt vatnsverndarsvæði er mjög víðfemt eins og sjá má á þessari mynd.
Starfsmenn Norðurorku við vinnu í Öxnadal í morgun.