Fara í efni
Fréttir

Tónleikar á morgun til styrktar Birnu

Lífið er núna - tónleikar til styrktar Birnu Kristmundsdóttur verða haldnir á Verkstæðinu neðst við Strandgötu á Akureyri annað kvöld, fimmtudagskvöld. Birna, sem er fædd 1988 og búsett á Akureyri, hefur greinst þrisvar með krabbamein.

Vinir Birnu sem standa fyrir tónleikunum fá húsið endurgjaldslaust og allir tónlistarmennirnir gefa vinnu sína. Aðgangseyrir rennur því óskiptur til Birnu.

Á tónleikunum koma eftirtaldir fram:

  • Hljómsveitin Angurværð
  • Stebbi Jak
  • KÁ/AKÁ
  • Rúnar Eff
  • Bergsveinn Arilíusson
  • Fanney Kristjáns
  • Vala Eiríks

Oddur Bjarni Þorkelsson verður kynnir kvöldsins. Aðgangseyrir er 3.000 krónur. Tónleikarnir hefjast klukkan 21.00.

Í tilkynningu segir meðal annars um Birnu:

„Hún hefur greinst þrisvar með krabbamein fyrst í leghálsi í enda árs 2017, fór í keiluskurð tvisvar með stuttu millibili, seinni í apríl 2018.
Árið 2019 verður Birna ófrísk af syni sínum, meðgangan gekk vel og eignuðust þau, Birna og Víðir, hann Kristmund í maí 2020. Birna og Víðir gifta sig þá um sumarið í fallegri athöfn á Grundarfirði í heimabæ Birnu. Birna greindist aftur með leghálskrabbamein og fór beint í geislameðferð og lyfjagjöf. Hún lýsti því yfir að vera krabbameinslaus september 2021 en í apríl 2022 var krabbmeinið búið að dreifa sér út í eitla og er Birna því enn að berjast með það að markmiði að halda sjúkdómnum niðri.“

Hægt er að styrkja Birnu beint á styrkarreikning hennar:

  • Reikningur: 0123-15-021188
  • Kennitala: 191288-2039

Einnig verður á staðnum bás með söluvarningi frá Krafti. Kraftur er fjölþætt stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra

Bankareikningur Krafts:

  • 327-26-112233
  • Kennitala: 571199-3009

Miðasala er á tix.is og einnig verður hægt að greiða við inngang.