Tjaldsvæðið að Hömrum vel sótt í haust
Tjaldsvæðið að Hömrum stendur ekki autt þótt komið sé fram á vetur enda er aðstaðan þar opin og „góð allt árið,“ eins og Ásgeir Hreiðarsson, framkvæmdastjóri Hamra, orðar það í frétt á vef Akureyrarbæjar. „Þarna er sama aðstaða og á sumrin,“ segir Ásgeir, „nema að bílunum er lagt á bílastæði, en ekki á flötinni. Gestir hafa aðgang að salerni, sturtum, eldhúsi, rafmagni og vatni. Eldhúsið er þó fulllítið og þegar 20-30 hópar eru að elda morgun- eða kvöldmat verður þröngt enda er þetta minna eldhús en flestir hafa heima hjá sér.“
Frá því er sagt á vef bæjarins að mikill gestagangur hafi verið á tjaldsvæðinu að Hömrum í haust og vetraraðsóknin hefur aukist ár frá ári. Í október í fyrra voru skráðar 1.800 gistinætur og þegar fréttin var birt þann 25. október voru gistinætur þegar komnar upp í þá tölu og nokkrir dagar þá enn eftir af mánuðinum. Þegar flest hefur verið í október voru 127 gestir sömu nóttina og aldrei færri en 37.
Mynd af vef Akureyrarbæjar
Bandaríkjamenn eru tíðustu gestirnir á tjaldsvæðinu í október, en næstir koma Spánverjar, Þjóðverjar og Frakkar. Flestir sem gista að Hömrum utan sumartímans eru í bílum en þó alltaf einhverjir sem velja að sofa í tjaldi.
„Það er velkomið að gista í tjöldum en menn þekkja misvel til íslenska vetrarins,“ segir Ásgeir einnig. „Einn gestanna í febrúar vildi til að mynda fá að vita hvar grasið væri. Margir þessara gesta eru að koma til Íslands í annað skipti og vilja heimsækja landið á öðrum árstíma og svo er stór hópur í norðurljósahugleiðingum. Flestir gista aðeins eina nótt, koma seinnipartinn og eru farnir fyrir hádegi en þá týnast bæjarbúar og gestir oft að tjaldsvæðinu til að stunda sitt vetrarsport, sem gerir það stundum erfitt að finna tíma til að hreinsa snjóinn af bílastæðunum.“
Árið í heild hefur verið gott að því er fram kemur í fréttinni. Fjölgun um 5-10% frá fyrra ári. Þó voru júní og ágúst lélegri en í fyrra, en í júlí var 90% fjölgun milli ára. Það þarf ekki að koma á óvart að aðstóknin fer mikið eftir veðri og þó það hafi ekki verið frábært í sumar var það þó betra hér en annars staðar að sögn Ásgeirs Hreiðarssonar, framkvæmdastjóra Hamra.