Fara í efni
Fréttir

Tíminn sem fór – Emmsjé Gauti og Brekkuskóli

Emil Andri Davíðsson (t.h) og Örn Heiðar Lárusson (t.v) ásamt Emmsjé Gauta. Strákarnir sömdu lagið sem varð fyrir valinu til frekari vinnslu í höndum Emmsjé Gauta. Textinn við lagið samdi bekkurinn í sameiningu.

Nýtt lag með Emmsjé Gauta, Tíminn sem fór,  var kynnt í þættinum Málæði á RÚV í kvöld, í tilefni af Degi íslenskrar tungu. Lagið er afrakstur samstarfs tónlistarmannsins og krakka í Brekkuskóla á Akureyri. 

Eins og Akureyri.net greindi frá komu tónlistarmennirnir Emmsjé Gauti og Vignir Snær Vigfússon í Brekkuskóla í október þar sem þeir unnu að nýju lagi með nemendum í 10. bekk.  Lagasmíðarnar voru hluti af verkefninu Málæði sem hafði það að markmiði að fá listafólk og unglinga til þess að leika sér með íslenskuna og skapa í tali og tónum. 


Skjáskot úr þættinum Málæði sem sýndur var á RÚV í kvöld. Emmsjé Gauti með 10. bekkingum úr Brekkuskóla. 

Hér fyrir neðan má hlusta á lagið og þar er einnig texti lagsins.

 

Tíminn sem fór

Sumarið er tíminn,

þar sem mitt fer í ró,

hittumst á gamla staðnum,

þar sem æskan mín dó.

Og núna er tíminn,

tíminn sem fór,

þegar öll fjöllin minnka,

skila sér niður í sjó.

 

Ég sakna þess

þegar tíminn var endalaus.

 

Sumarið er tíminn,

þó það stoppi stutt.

Hafið það glitrar,

demantar og gull.

Og tíminn hann hverfur,

þegar mitt fer í ró,

gufar upp eins og vatnið

þegar við fáum sól.

Nemendur í 10. bekk SPG í Brekkuskóla. Skjáskot úr þættinum Málæði á RÚV.