Fara í efni
Fréttir

Þyrla verður til staðar á Norðurlandi allt árið

Frá opnunarhófi HeliAir Iceland, sem haldið var í flugskýli félagsins í Reykjavík. Ljósmynd: Ágeir Helgi Þrastarson

Nýtt flugfélag, HeliAir Iceland, sem nýlega fékk úthlutað flugrekstrarleyfi hjá Samgöngustofu, verður með höfuðstöðvar á Ólafsfirði. Félagið mun félagið halda úti þyrlurekstri bæði þar og í Reykjavík.

Starfsfólk HeliAir Iceland hefur áratuga reynslu í þyrluþjónustu bæði á Íslandi og erlendis, segir í tilkynningu frá félaginu. „Allir flugmenn félagsins eru íslenskir og leggur félagið mikla áherslu á að flugmenn þekki vel til íslenskra aðstæðna,“ segir þar.

Þyrluþjónusta allt árið

Félagið hefur fest kaup á glæsilegri þyrlu, Bell 407 GXP, sem bæði nýtist í farþegaflug og í verkflug, að því er segir í tilkynningunni, til dæmis við hífingar og lagningu á göngustígum á viðkvæmum svæðum. Þyrlan tekur allt að 6 farþega og er útbúin sérstökum gluggum sem henta einstaklega vel í útsýnisflugi.

„Við erum mjög spennt að fljúga með viðskiptavini okkar og sérstaklega spennt að byggja upp þyrluþjónustu á Norðurlandi. Þetta er í fyrsta skipti þar sem að þyrla verður til staðar á Norðurlandi árið um kring og við höfum fengið mjög góð viðbrögð, svo sem frá ferðaþjónustuaðilum sem selja ferðir á svæðinu,“ segir Jón Þór Þorleifsson framkvæmdastjóri HeliAir Iceland.