Fara í efni
Fréttir

Þyrlan sótti sjúkling á Öxnadalsheiði

Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur sig á flug frá þyrlulendingarstaðnum við Sjúkrahúsið á Akureyri á fimmta tímanum í dag eftir að hafa skilað sjúklingi ofan af Öxnadalsheiði á sjúkrahúsið. Mynd: Haraldur Ingólfssson.

Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug til móts við sjúkrabifreið upp á Öxnadalsheiði í dag til aðstoðar við flutning á sjúklingi á Sjúkrahúsið á Akureyri. Þetta kemur fram á mbl.is

Þyrlusveitin var að búa sig undir flug þegar beiðni barst um að fljúga til móts við sjúkrabifreið og flýta fyrir flutningi til Akureyrar. „Þyrl­an flaug inn á Öxna­dals­heiði, lenti þar og tók sjúk­ling­in um borð og lenti síðan með hann við sjúkra­húsið á Ak­ur­eyri,“ seg­ir Ásgeir Er­lends­son, upp­lýs­inga­full­trúi Land­helg­is­gæsl­unn­ar, í sam­tali við mbl.is