Þorvaldur í framboði til formanns KSÍ
Akureyringurinn Þorvaldur Örlygsson, fyrrverandi landsliðs- og atvinnumaður í knattspyrnu og þjálfari til fjölda ára, hefur ákveðið að gefa kost á sér í kjöri á formanni Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ) í næsta mánuði. Hann sendi frá sér tilkynningu þessa efnis í morgun.
Áður hafði Guðni Bergsson, fyrrverandi formaður KSÍ, gefið kost á sér á ný. Vanda Sigurgeirsdóttir, núverandi formaður KSÍ, hafði áður lýst því yfir að hún hygðist láta gott heita.
Þorvaldur, sem er 57 ára, er KA-maður að upplagi. Hann lék með öllum yngri flokkum félagsins og varð Íslandsmeistari með KA 1989. Þorvaldur var kjörinn leikmaður ársins að tímabilinu loknum og gekk í kjölfarið til liðs við Nottingham Forest á Englandi. Hann lék sem lánsmaður um tíma með Fram í Reykjavík en var síðar á mála hjá Stoke og Oldham í Englandi. Þorvaldur lék svo með KA á ný, eftir að hann var ráðinn þjálfari liðsins árið 2000. Síðan hefur Þorvaldur þjálfaði nokkur lið hér heima auk U19 ára landsliðs Íslands. Hann starfar nú sem rekstrar- og íþróttastjóri knattspyrnudeildar Stjörnunnar.
Fréttatilkynning Þorvaldar er svohljóðandi:
„Síðustu mánuði hef ég fengið fjölda áskorana um að gefa kost á mér í þetta mikilvæga starf og eftir að hafa rætt við félags- og forráðamenn íslenskra knattspyrnufélaga og heyrt skoðanir þeirra á fjölmörgum þáttum íþróttarinnar, hef ég ákveðið að taka áskoruninni.
Ég deili skoðunum, viðhorfum, áhersluatriðum, áhyggjum og framtíðarsýn fjölmargra félaga minna í íslenska boltanum og er þeirrar skoðunar að við þurfum betri bolta, bæði innan og utan vallar.
Knattspyrnan hefur verið í fyrsta sæti hjá mér frá því að ég mætti með eldri bróður mínum á fyrstu æfinguna fimm ára gamall og hún er það enn. Ég veit að þekking mín, reynsla og áhugi mun reynast KSÍ vel í þeim verkefnum sem framundan eru.“
Meðal áhersluatriða nefnir Þorvaldur endurskoðun á stefnu og hlutverki KSÍ, ábyrgan rekstur, eflingu knattspyrnu á landsbyggðinni, styrkingu kvennaboltans, endurskoðun dómaramála og byggingu þjóðarleikvangs.
„Við þurfum að fara í endurskoðun á stefnu og hlutverki KSÍ og rekstur þess þarf að vera ábyrgur. Ég vil auka og bæta samskipti lykilaðila í íslenskri knattspyrnu, eins og til að mynda KSÍ og ÍTF. Þá hef ég, eins og fleiri, áhyggjur af aukinni einangrun félaga á landsbyggðinni.
Liðum fækkar, ferðakostnaður hækkar og við þurfum að grípa þar inn í. Dómaramál eru mér að sama skapi hugleikin. Ég vil fjölga dómurum og myndi vilja sjá þann þátt koma inn í skólakerfið og auka áhuga yngri kynslóða á dómarastarfinu, efla þannig stéttina og þar með bæta dómgæsluna.
Ég vil tafarlausar viðræður við ríki og borg um þjóðarleikvang og tel að við eigum að endurbyggja Laugardalsvöll upp sem slíkan.“
Meðal helstu áhersluatriða Þorvaldar má nefna:
- Endurskoða stefnu og hlutverk KSÍ
- Tryggja ábyrgan rekstur KSÍ
- Auka og bæta samskipti lykilaðila í íslenskri knattspyrnu, t.d. KSÍ og ÍTF
- Stofna framkvæmdastjórn KSÍ
- Efla kvennaknattspyrnu á öllum sviðum, frá grasrót til landsliða
- Tryggja jafnrétti og fjölga konum innan stjórnkerfis KSÍ
- Koma hreyfingu á byggingu þjóðarleikvangs sem áfram verði í Laugardal
- Styrkja félagslið á landsbyggðinni og lækka ferðakostnað
- Fjölga dómurum og koma þeim þætti inn í skólakerfið
Þorvaldur segir fjölmörg önnur atriði þarfnast nánari skoðunar, breytinga og endurskoðunar við og mun hann gera grein fyrir þeim þegar nær dregur ársþingi KSÍ.