Þórsarar töpuðu í 211 stiga leik á Selfossi
Sóknarleikur var í hávegum hafður í fyrsta deildarleik karlaliðs Þórs í körfuknattleik þegar liðið mætti Selfyssingum á útivelli í kvöld. Heimamenn á Selfossi unnu með 17 stiga mun í leik þar sem tapliðið skoraði 97 stig!
Jafnt var eftir fyrsta leikhlutann, 30-30, en Þórsarar þó með forystu lengst af fyrri hálfleiknum. Selfyssingar náðu yfirhöndinni undir lok fyrri hálfleiks og héldu henni út leikinn. Þórsarar náðu að minnka muninn niður í fimm stig undir lok þriðja leikhluta, en aftur slitu Selfyssingar sig frá þeim í lokafjórðungnum.
Reynir Bjarkan Barðdal Róbertsson var stigahæstur Þórsara með 33 stig og var einnig með flest fráköst og stoðsendingar í Þórsliðinu, tók 12 fráköst og átti níu stoðsendingar.
- Byrjunarliðið: Andrius Globys, Baldur Örn Jóhannesson, Orri Már Svavarsson, Reynir Bjarkan Barðdal Róbertsson og Smári Jónsson.
- Gangur leiksins eftir leikhlutum: Selfoss - Þór (30-30) (31-27) 61-57 (24-20) (29-20) 114-97
Tölfræði leikmanna Þórs, stig-fráköst-stoðsendingar:
- Reynir Barðdal Róbertsson 33 - 12 - 9
- Andrius Globys 23 - 5 - 2
- Baldur Örn Jóhannesson 19 - 11 - 3
- Veigar Örn Svavarsson 15 - 8 - 3
- Orri Már Svavarsson 3 - 1 - 0
- Smári Jónsson 2 - 3 - 6
- Páll Nóel Hjálmarsson 2 - 2 - 0
Athygli vekur að Þórsliðið var án bandaríska leikmannsins síns, Tims Dalger, en hann mun ekki vera kominn með leikheimild með liðinu.