Íþróttir
Þór/KA heima gegn Blikum í undanúrslitum
12.06.2024 kl. 06:00
Lara Ivanusa, leikmaður Þórs/KA, og Blikinn Agla María Albertsdóttir eigast við í deildarleiknum um síðustu helgi. Þær mætast á sama stað eftir rúmar tvær vikur í undanúrslitum bikarkeppninnar. Myndir: Þórir Tryggvason
Þór/KA fær Breiðablik í heimsókn í fjögurra liða úrslitum Mjólkurbikarkeppni kvenna í knattspyrnu, undanúrslitunum. Í hinni viðureigninni mætast Reykjavíkurliðin Valur og Þróttur.
Átta liða úrslit keppninnar fóru fram í gær. Þór/KA vann FH 1:0 í Hafnarfirði eins og Akureyri.net greindi frá, Breiðablik sigraði Keflavík 5:2, Valur lagði Grindavík 6:0 og Þróttur vann Aftureldingu 4:1.
Dregið var til undanúrslita í gærkvöldi og leikirnir fara fram í lok mánaðarins.
Þór/KA tapaði 3:0 á heimavelli fyrir Breiðabliki í Bestu deildinni um síðustu helgi og fær því kjörið tækifæri til hefnda; til að tryggja sér sæti í úrslitum bikarkeppninnar.
Laugardag 29. júní:
- Þór/KA - Breiðablik
Leikurinn hefst klukkan 13.00 á Þórsvellinum (VÍS-vellinum)
Sunnudag 30. júní:
- Valur - Þróttur
Leikurinn verður á Valsvellinum (N1 vellinum) að Hlíðarenda og hefst kl. 13.00.
Smellið á myndina til að sjá umfjöllun um leikinn í gærkvöldi