Menning
Þjóðbúningadagur á Safnasafninu
27.09.2024 kl. 17:30
Félagar í Dansfélaginu Vefaranum bjóða upp á danssýningu á Safnasafninu á morgun. Félagið hefur starfað á Akureyri í rúm 20 ár og komið víða fram, bæði innanlands og utan.
Þjóðbúningadagur verður á sunnudaginn á Safnasafninu á Svalbarðsströnd og jafnframt verður opnuð sýning á mynstrum og þjóðbúningum úr textíldeild Safnasafnsins.
Samkoman verður á milli klukkan 14.00 og 16.00. Allir eru velkomnir og í tilkynningu frá safninu er fólk af erlendum uppruna sérstaklega hvatt til að mæta í þjóðbúningi síns heimalands.
„Frábært tækifæri til að kynna sér íslenska þjóðbúninginn - og fyrir þá sem eiga hann að klæðast honum,“ segir í tilkynningunni.
- Dansfélagið Vefarinn verður með dansatriði
- Kristín Vala Breiðfjörð, formaður Heimilisiðnaðarfélagsins, ræðir áhrif Sigurðar Guðmundssonar málara á íslenska þjóðbúningasögu
- Bryndís Símonardóttir kynnir hvítsaumsnámskeið vetrarins
- Sýningaropnun í suðurstofu safnsins á mynstrum og þjóðbúningum úr textíldeild Safnasafnsins
Aðgangur er ókeypis og heitt verður á könnunni. Viðburðurinn er styrktur af Menningar- og viðurkenningarsjóði KEA.