Mannlíf
Svavar og fluggáfaða ryksuguvélmennið
21.05.2023 kl. 15:30
„Mér hefur alltaf staðið stuggur af því sem kallað er gervigreind,“ skrifar séra Svavar Alfreð Jónsson í nýjum pistli sem birtist á Akureyri.net í dag. Hann bætir svo við: „Þó er ég sérfræðingur í gervigreind; um árabil hef ég með góðum árangri stundað að sýnast gáfaðri en ég er – enda kannski ekki erfitt verkefni myndu sumir segja.“
Svavar upplýsir að þrátt fyrir róbótafælni hafi hann fyrir nokkrum vikum keypt ryksuguvélmenni. Það sé fluggáfað kvikindi. Í pistlinum lýsir Svavar „samskiptum“ þeirra á kostulegan hátt eins og honum einum er lagið.
Smellið hér til að lesa pistil Svavars Alfreðs.